Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Íþróttir

Hvar er sólin mín?

Ég bara skil ekki þessa þoku endalaust sem liggur hérna alveg uppvið húsin og böggar mig og svo keyrir maður aðeins lengra inn í Eyjarfjörð og þá er bara glaðasólskin þar og eins í Vaglaskógi. Spurning um að fara bara þangað í nokkra daga útilegu og keyra á milli í vinnuna svo maður fái smá sólbrúnku í fríinu! Annars fórum við Marý og SvannaBogga í frekar mislukkaða verslunarferð í gær því útsölurnar byrjuðu ekki fyrr en 10 í morgun en hugsunin var að verlsa dress fyrir brúðkaupið Hönnu og Birgis en endaði bara í einhverjum hlátursköstum og áti Hlæjandi o-ó!!! En það er allt í góðu það var sko tekið á því á fótboltaæfingu í gærkvöldi og svo er önnur æfing í dag, stelpur ég gef ykkur enn eitt tækifærið á að mæta í þrek og tár kl. 17 í dag svo við getum étið meira. Svo þurfum við endilega að fara að veiða aftur því ég gjörsamlega mokaði ýsunni upp á bryggjuna, eða frekar Svanborg og Ingólfur, jújú þau fengu 4 fiska. Ég var bara í því að taka myndir sem koma inn von bráðar.

Ég varð svo heppin að ég náði að selja Toyotuna í gær þannig að það gengur bara allt að óskum þessa dagana í Skarðshlíðinni og Sólheimabrosið okkar nær allann hringinn. Annars er það bara brúðkaupið framundan og allir hlakka rosamikið til. Endum kannski svo bara í útilegu á lau.kvöld og fram á mánudag, hver veit...verðum allavega að prufa nýja tjaldið mar... Lifið heil


Blikk, takk fyrir mig og góðan dag tilraunir!!!

Góðir hálsar ég hef verið að stunda ýmsar tilraunir hérna um dagana á Akureyri síðan ég flutti hingað og er það m.a. falið í því að segja "Góðan daginn" þegar maður mætir einhverjum gangandi eða á hjóli, tilraun 2 hófst í viðbrögðum við að blikka ljóslausa bíla og tilraun 3 fólst í því að segja "takk fyrir mig" þegar ég er að fara upp úr sundi og ganga út. Ég veit ekki hvort við erum svona hrikalega vel upp alin á Óló en allavega er þetta umhverfi hérna ekki að ýta undir almenna kurteisi og vingjarnlegheit. Fólk segir bara ALDREI góðan dag af fyrra bragði og mjög sjaldan sem það tekur á móti ef ég byrja, kom reyndar nýtt met í Kjarnaskógi í gær þar sem allir voru voðalega ligeglad á kvöldgönguHlæjandi(plús í kladdann þar), fólkið í sundlauginni segir heldur ALDREI af fyrra bragði "takk fyrir komuna"(eins og maður gerði meira að segja við úglendina við sundlaugarvinnu á Óló) og þó svo maður segi takk fyrir mig, þá þykjast þær stundum ekki heyra það, en ég tala ekki manna lægst og ég veit að þær bara nenna ekki mannlegum samskiptum.....fáiði ykkur nýja vinnu!! Já og niðurstöður í tilraun númer 3 er mj0g mismunandi. Maður blikkar ljóslausa bíla sem maður mætir og það er til fólk sem bara kveikir, og heilsar með þökk. Svo eru það sumir sem fatta bara ekki neitt og skilja ekkert af hverju ég var að blikka þá. Svo eru það þeir sem vita að þeir eru eineigðir en nenna ekki að skipta um peru og verða brjálaðir út í mig og bíbba á mig eða setja hnefann út í glugga í átt að mér en Í dag fékk ég nýja niðurstöðu þegar ég mætti ég kolgeggjuðum gaur á svakalegum pallbíl. Ég blikkaði hann svolítið langt frá og hann blikkaði mig á móti, byrjaði að beygja á móti mér á minn vegarhelming, bíbbaði eins og brjálæðingur og endaði á að gefa mér FOKKMERKI þegar við mættumst á meðan ég söng bara með útvarpinu í góðum fílíng!!! Hvað er í gangi, hvar endar þetta spyr ég nú bara??? Allavega þá ætla ég ekki að hætt með þessar tilraunir sem eru búnar að standa yfir síðan ég flutti á AK og stefni ég á að stunda þetta þangað til ég flyt héðan aftur, þannig að passiði ykkur nú, þið gætuð verið næst í kurteisistilraun Lísu skvísu!!! durururummmmm Svalur

 

AÐ Nikurlásamótinu sem er á helginni...Við Rúní ætlum til Óló eins og alltaf á fös í mat til Ingós og SvönnuBoggu og svo er planið að fara að veiða út á bryggju..djí hvað ég hlakka til. Stefnum einnig á að tjalda nýja tjaldinu okkar og athuga hvernig það veðrast um helgina svo er það bara leikur á sunnudaginn á GRENIVÍKURVELLI kl. 14......ALLIR AÐ MÆTA og hvetja okkur, erum hreinlega að berjast um toppsætið í deildinni, úllalí. Birna og Tóti þið munið stefnumótið á sunnudaginn um 18 leytið og núna ætlum við að fá að sofan í ykkar sófa, við skulum koma með teppi tí-hí

XXX LiZ


ITALY

Vá hvað þetta var mikil snilld í gær þó svo að það sé aldrei sanngjarnt að vinna eftir vítaspyrnukeppni, nema í gær af því að mitt lið rústaði þessu Svalur Svalastir. En hvað var málið með Zidane í gær ég bara trúi ekki að maðurinn hafi gert þetta. Þessi knattspyrnumaður hefur verið einna virtastur í bransanum og toppaði ferilinn á því að skora eitt, í 100. landsleiknum, fá rauða spjaldið og útaf ég bara skil ekki þessa ákvörðun hans. Hvað ætli hafi farið þeirra þarna á milli? tillögur eru vel þegnar í kommentin. Ég segi að ítalinn hafi klipið hann í geirvörtuna og rifið hringinn úr til minningar um Zidane í kynlífsleikjunum sínum í framtíðinni!!!

Annars eru 2 spennandi leikir á dagskrá í dag og má þar nefna númer EITT lið Magna á Genó en þar munum við spila fyrsta heimaleik okkar kl. 20 í kvöld við Hött frá Egilsstöðum og það er eins gott að við pökkum þeim saman til að halda stöðunni ma´r!! Seinni stórleikurinn í kvöld verður sýndur í TV á Sýn og þar er hann Fjalli Rokk að fara að sýna sig og sanna á milli stanganna. Endilega hvetjið hann til dáða fyrir mig.... Áfram Fylkir. Gæti nú svo sem alveg brunað á jeppanum suður á fyrri hálfleik hjá Fjalari og rennt svo á Grenó á kerrunni og horft á seinni hálfleik hjá mínum skvísum hann liggur svo ruuusssssssssssssssalega á veginum drengur!!!

Lifð heil og gangi ykkur vel í boltanum í kvöld


SsangYong - Kyron Turbo Diesel

Öss öss þvílíkur bíll sem við vorum að versla á gær, ég bara get ekki hætt að horfa á hann eða hugsa um hann, díses hvað hann er GEÐVEIKUR og að keyra hann um..mm.M Svalur Hlakka bara til að fara að þruma í gegnum skaflana í Múlanum í vetur, ekki það að Corollan hafi ekki staðið sig vel, það var bara orðið verra þegar það sást ekki í hana vegna snjóa og litbrigða!! Svona númer 2 á fréttalistanum þessa dagana er auðvitað BlúsHátíðin sem hófst í gær á Ólafsfirði þar sem fram komu; Hundur í óskilum, Túpílakar o So stórsveitin og grínistarnir....HVANNDALSBRÆÐUR. Fullur salur af fólki og gríðarleg stemning í salnum og vá hvað var gaman. Maður var búinn að hlæja sig hásan af textum, framkomu, ljóðalestri og hálfvitagangi í þeim félögum, takk fyrir mig.

Annars kúrðum við bara í fellihýsinu í nótt við Rúní því það var bara troðfullt hús hérna í Garðstígnum en það var voða kósí og alltof heitt. Edda og Brandur eru nebblega í okkar íbúð á Ak út af Esso mótinu sem þýðir að Akureyrarbær er troðfullur og er búin að vera síðan á miðvikudag. Vá hvað þolinmæðin mín er lítil á götunum þegar allt er fullt en ég horfi bara á mælaborðið mitt og verða þá strax glöð yfir nýja kagganum...sjitt. Pollamótið er líka í fullum gangi og var okkur Magnastelpum bara allt í einu meinaður aðgangur, vorum sko búnar að fá leyfi til að keppa en fyrst við erum svona góðar þá bara þorðu þeir ekki annað en að skrá okkur úr keppni og notuðu það sem afsökun að við mættum það ekki því við værum með lið í deildinni, en samt mátti 3. deild karla vera með lið!!! Hjelló? Ég veit ekki betur en ég sé hreinlega skráð í 3. deild karla og sé í eins leikja banni!! tjékkitát: http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=36727?&flash=true !! Þetta er ekki samkvæmt sjálfu sér þetta lið. En svona er þetta bara. Ég hugsa bara aftur um bílinn og brosi allann hringinn Hlæjandi

Gullkorn af leikjanámskeiðinu í gær "(the boy)Já mamma ætlar að láta skjóta einn hest því hann er eitthvað lasinn. "Þinn hest?(spurði ég)", "(hann), sko ef hún gerir það...(smá bið og mikið hugsað).... ............."ÞÁ SKÝT ÉG HANA"...dúlli dúll. En þetta var allt að enda í dag og þakka ég þessum krílum fyrir mig, ég á svo sannarlega eftir að sakna þeirra....XXX Lísa


Útilegustemmari um helgina

Við hreinlega skelltum okkur í Vaglaskóg á föstudaginn í blíðuveðri á eftir bróður vor og fjölskyldu og hittum Birnu og Auðunn úr Mörk eiginmann hennar, en hann ásamt fjölskyldu sinni, á land við hliðina á fjölskyldusvæðinu í Vagló sem heitir Mörk og við gistum þar á þessum fínasta stað. Brugðið var á leik eins og í öllum útilegum en hælsærið lét mig alveg vita að það væri ekki gróið sko! Fórum í krikket og frisby og fótbolta og gönguferð upp á Sjónarhól og heimsóttum Línu langsokk, Níels og hestinn auðvitað fengum Hákons gæðaslím með okkur heim! Brunuðum í Sund á Stóru Tjörnum í sól og blíðu og svo rigndi líka smá en það er bara að vera ávallt viðbúinn, sem við vorum! Stjáni og Björn Ægir léku á alls oddi svo var auðvitað líka keppt í Boccia og Kubb sem mitt lið vann Naturlich.

Nú er það bara vonandi að maður fari að komast í takkaskónna því nú verður sko tekið á því á æfingum þó það væri nú ekki bara nema ti að hrista allt góðgætið af sér sem maður tróð ofaní sig um helgina. Össs. Hildur mín til hamingju með stóru prinsessuna, hún er algjört æði.

Á föstudaginn var svo hún Hanna okkar tekin í gegn á föstudaginn á hádegi og gæsuð af okkur hinum. Ég var reyndar ekki með nema í upphafsatriðinu vegna löngu ákveðinnar útilegu en þið ráðið bara hvað þið verðið lengi reiðar við mig, svona er þetta bara Saklaus Byrjuðum á að láta kalla hana á fund í Mjólkursamlaginu og við mættum þar með kúrekahatta og reiðbuxur og hún var klædd eins upp í sett í gúmmískó og ullarsokka, svo var brunað á Dalvík á hestbak. Hún var látin elda í gamla húsinu þeirra á Óló og tekið var svo á því í Jóga hjá Snjóku áður en farið var á trillu og Sjávarútvegsfræðingurinn látinn sýna okkur hvað hún væri klár á veiðafærin!!! Planið var næst að koma í land út á kleifum og fara upp á Jaðar að grilla og súpa öl og gekk víst á ýmsu á meðan ég kúrði bara í tjaldi einhversstaðar. En ég læt nú sjá mig í Brúðkaupinu sem er aðeins eftir 20 daga þannig að Birgir þyrfti eiginlega að fara að koma heim að sjónnum. Annars er ég farin að henda upp úr töskum og ganga frá eftir þessa geggjuðu ferðahelgi.... Over and out.. Lísa


Fékk hreinlega að líta rauða spjaldið í gær

En það var algjörlega þess virði því annars hefði þetta orðið mark þannig að ég sé ekki eftir þessu fyrir fimmaura. Hefði samt alveg fyrst vilja fá gult, en neinei hann þrumaði bara rauða strax, beint framan í feisið á minni! Bætti líka upp sjálfsmarkið á lau og skoraði þetta glæsimark með skalla eftir hornspyrnu frá Jónu Benný, þvílík snilld, elska að vera sweeper og geta skorað, það eru ekki margir varnarjaxlarnir sem fá að reyna það. En leikurinn í gær gekk rosalega vel og vorum við bara hressari og ferskari ef eitthvað var, en daginn áður á móti Hetti. Byrjuðum af hörku og tókum fyrri hálfleik 4-0. Í seinni hálfleik fórum við eitthvað að stressast upp en náðum nú samt að skora sko og þær settu líka eitt, en leikurinn endaði 5-1 fyrir okkur MagnagellZ þó svo að við hefðum bara verið 11, engir varamenn og þjálfaralausar, djös snilld. Sæja kom með sterkan punkt á vellinum þar sem ég vildi byrja á móti vindi, en hún sagði að það myndi lægja með kvöldinu þannig að það skipti engu!!(klukkan var 15.00) Hlæjandi krútt. Tóti og Hreggó stóðu sig eins og hetjur og voru rosastolti af okkur og við af þeim. Takk stráksar. En við náðum markmiðinu sem var að koma okkur aftur efst í deildina sem við og gerðum og nú er það bara að halda sér þar. Ég verð reyndar í banni næsta leik en svona er þessi bolti maður veit aldrei hvað gerist. Nú er bara að reyna að ná sér eftir þessa rússíbanameðferð og hlúa að hælunum sem eru nú báðir alblóðugir og leita sér aðstoðar hjá kíró! Hvað segiru um það Sandra, áttu laust?? Er hreinlega öll í köku!

Hildur Gyða er líklega komin af skurðarborðinu núna en það átti að taka keisara á henni í morgun þannig að það verður spennandi að vita hvað hún átti þessi elska. Til lukku!! Leikjanámskeið og sund á morgun og er ég strax farin að hlakka til að hitta gríslingana mína. Við ætlum í hjólatúr ú-je. Svo er það bara útilega um næstu helgi þannig að vikan hljómar frekar spennandi hérna megin. Heiðdís mín á afmæli á morgun í útlandinu og óska ég þér innilega til hamingju músin mín. Við söknum þín sæta..... XXX Lísa og Rúní


Ég skoraði :-)/:-(

Það er spurning hvort maður eigi að hafa bros- eða fýlukarl því Fjallabyggðarmærin skoraði með glæsilegum skalla í sitt eigið mark og kom leiknum í gang. Ég ætla samt að líta bara á þetta mark sem pepp-up því eftir að það leit dagsins ljós þá fór grimmdin og harkan í okkar mönnum að koma í ljós og rifum við okkur upp úr þessu í seinni hálfleik og skoruðum tvö mörk og þar með RÚSTUÐUM leiknum :-D Tóti og Hreggó sáu um okkur því þjálfarinn var bara eitthvað á Akranesi en það er allt í lagi við þurfum greinilega ekki á neinum að halda nema okkur sjálfum og örlitla trú og sjálfstraust. Þetta verður eitthvað sem karlmenn eiga aldrei eftir að Geta!! Sorry :-D

En við Rúní keyrðum af stað í gærkvöldi á Neskaupsstað til Jóu Willa og krúsuðum hjá hennar fjölskyldu og fengum dýrindis veitingar. Tókum Egilsstaði um hádegi og Kalli Jörg og Jóa sýndu okkur verslanir og sonna í blíðunni og já, unnum svo leikinn svo ég minnist á það aftur! Tókum sundpakkann á þetta eftir leik og þar sveið inn að beini því hællinn datt af mér, eða ég sá allavega í kjötið!!! Hittum Gísla Skólabróðir þar sem hann var ferskur í 400m sundsprettinum en við Birna höldum að hann hafi bara verið að sýna sig fyrir okkur! Mamma Kalla bauð okkur svo í ekta mömmupizzu og ummmm hvað hún var unformazing. Nú erum við komin heim í Sæbakkann á leið í súkkulaðikökubakstur, nammi, snakk og gos... úff ætli maður verði eitthvað þungur í leiknum eða? Annars á að reyna að fara snemma í háttinn því leikurinn byrjar kl.14 á morgun

Vildi pínku að við værum í Fellihýsaútilegu með Mömmu, pabba, bróa og helgu og co..en við ætlum með þeim um næstu helgi for sure og vá hvað ég hlakka til. Hugsiði fallega til okkar á morgun og sendið okkur endilega alla ykkar aukaorku. Knús og kram....Lísan


Hermann Hreiðarsson í Bónus

Nammi namm, ef ég hefði verið ólétt þá hefði ég misst legvatnið!!! Sjitt hvað hann er myndó, og frægur og bara eitthvað hávaxinn og hann blasti bara við mér við kassan í Bónus, amma Lísa var eitthvað að reyna að tala við mig og Rúnar, en ég heyrði ekkert hvað þau sögðu, hehe ég hreinlega vissi ekki að hann væri svona hávaxinn og hann bara stóð upp úr öllum röðunum á kössunum, dí með kjálkann alveg út í loftið..jeminn, núna man ég af hverju ég elska fótbolta!! Ullandi Djók... en lærið á mér er alveg að koma til og er ég orðin aftur aðeins jákvæðari á Austurferðina um helgina, hlakka hreinlega bara til, held meira að segja að Rúní ætli að lauma sér með. Getur ekki verið án mín þessi elska!! Var að byrja með sund-og leikjanámskeið á þriðjudaginn og þessar elskur bjarga alveg deginum manns þau eru svo yndisleg. Hér koma nokkur dæmi um það sem gefur manni glaðan dag;

-"Má maður þá ekkert anda það sem eftir er af tímanum?"

-"Ég kemst ekki í dag því ég datt á hjólinu mínu og handleggsbrotnaði á pungnum"(einn fékk stuð)

-"Eru þá augabrúnirnar á þér svona brundaðar á?"(ein að spá með tattúið og meinti brenndar!!)

Æji þau eru alveg frábær þessar snúllur. Leikir í dag og svo verður farið að veiða síli á morgun, jí-ha!! Annars bið ég bara að heilsa ykkur eins og alltaf og vona að dagurinn ykkar verði jafn frábær og minn mun verða. Kv. LiZ


Bleikur dagur í dag, til hamingju konur!!

Já það breyttist nú aldeilis planið hjá okkur hjúunum um helgina því Rúní nennti ekki til Húsavíkur þannig að við völdum afslöppun, bíó með Elís frænda og svo krúsuðum við á Óló á 17. júní og eyddum afmælisdeginum með ömmu í kaffi og kræsingum. Við tók þessi svaðalega hjólaferð i leðju og rigningu í kringum Ólafsfjarðarvatn og vá hvað það var gaman að vera drullugur upp fyrir haus, úje! JÁ gleymdi að segja ykkur frá því á fimmtudaginn þegar strákarnir voru að smíða þá skellti mín sér upp á Múlaplan og vá ó vá hvað það var ruuusssssssalegt. Vegurinn var jú farinn í sundur á þremur stöðum og skriður hér og þar með snjó en ég fann mér fína gula stiku sem ég stakk í snjóinn á meðan ég var að koma mér yfir skriðurnar, dí mér leið eins og ég væri að leika með Stallone í Cliffhanger!! Svalur En þegar ég kom upp á plan þá sá ég allan heiminnnnn eða svona smá af honum t.d. Grímsey, Hrísey, Gjögra, Hvanndalabjarg, Fossdal, Hrólfssker, Ófærugjánna og dí hvað þetta var mikilfenglegt...sjitt kemst bara ekki yfir það.

Já allavega þá var svo matur á lau hjá mömmu og pabba og við kíktum svo á Svanborgu og Ingólf og þar var hörkustuð og mikið hlegið. Diljá og Helgi voru, Gunni Ása, Garðar og Hörður og fleiri vel valdir Ólafsfirðingar sem enduðu svo á balli með Miðaldarmönnum, en við krúsuðum heim í ból, við misjafnar undirtektir!! Leiftur/KS voru að keppa í gær á sigló við Fjarðarbyggð og die ganzen family brunaði yfir Lágheiðina og tókum ferðamannapakkann á Sigló. Skoðuðum Síldarminjasafnið, og allt sem fylgir því, tókum rúntinn og tjékkuðum á snjóflóðavörnunum og þetta var bara ekkert smá flottur túr. Hjalti og þeir töpuðu reyndar enda var dómarinn nánast í eins skyrtu og Þorvaldur Örlygsson og félagar...djös bull!!

Sund-ogleikjanámskeiðið byrjar á morgun þannig að við tekur undirbúningur í dag í sólinni. Hafið það gott og við sjáumst við tækifæri elskurnar....Koss


Unnum Magnaða leikinn 2-1...úje

Já það má sko með sanni segja hér að við vorum miklu betri og áttum að skora a.m.k. 5 mörk, sjittörinn hvað við erum óheppnar, þetta er ekki eðlilegt. En til lukku með flott mörk, var illa stolt af okkur. Er reyndar með marbletti út um allt en það lagast með sumrinu, eða kannski versnar!! okey lagast allavega með haustinu :-D

Erum komin á Óló. Ég fór að kenna og Rúnar smíðakall að hjálpa pápsa með tjaldstæðabústaðinn, illa flottur sko. Þeir verða að vinna langt frem i natten þannig ætli við krúsum ekki bara í gamla herberginu mínu...oh vildi að það væri ennþá bleikt og með fjólubláu gardínunum og rúmteppinu, vá hvað það var flott. Endalausir möguleikar í þessu mikla rými og við erum að tala um það að þegar við Alma vorum píjur þá breyttum við mublunum allt upp í 12x á dag og fórum svo í playmo út á skafli með snjó í glasi og djúsblöndu samanvið...ummm, ljúft þetta áhyggjulausa líf!! En ef við förum aftur til framtíðar þá er planið að fara á Húsavík á morgun með Skýrr og fara á REÐURSAFNIÐ....dí hvað ég hlakka til og svo auðvitað Hvalasafnið og einhverja siglingu en ég hef bara áhuga á því fyrsta..úlla-lí Planið er að krúsa hjá Slaugu og Unnsa á Húsavík og fara svo í útilegu eitthvað Austar í eina nótt, reyndar er Rúní eitthvað að gugna því það spáir KANNSKI nokkrum rigningardropum, en mér finnst það hins vegar BARA KÓSÝ og ekkert betra en að sofna undan hljóðinu í regndropunum, og svo segist hann vera útilegubarn!! Skil ekki...

Alla vega þá óska ég öllum góðara helgar og að þið skemmtið ykkur vel og skynsamlega á 17. júní og munið að kyssa ömmu Evu til hamingju með afmælið ;-D


« Fyrri síða | Næsta síða »

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband