Leita í fréttum mbl.is

Hvar er sólin mín?

Ég bara skil ekki þessa þoku endalaust sem liggur hérna alveg uppvið húsin og böggar mig og svo keyrir maður aðeins lengra inn í Eyjarfjörð og þá er bara glaðasólskin þar og eins í Vaglaskógi. Spurning um að fara bara þangað í nokkra daga útilegu og keyra á milli í vinnuna svo maður fái smá sólbrúnku í fríinu! Annars fórum við Marý og SvannaBogga í frekar mislukkaða verslunarferð í gær því útsölurnar byrjuðu ekki fyrr en 10 í morgun en hugsunin var að verlsa dress fyrir brúðkaupið Hönnu og Birgis en endaði bara í einhverjum hlátursköstum og áti Hlæjandi o-ó!!! En það er allt í góðu það var sko tekið á því á fótboltaæfingu í gærkvöldi og svo er önnur æfing í dag, stelpur ég gef ykkur enn eitt tækifærið á að mæta í þrek og tár kl. 17 í dag svo við getum étið meira. Svo þurfum við endilega að fara að veiða aftur því ég gjörsamlega mokaði ýsunni upp á bryggjuna, eða frekar Svanborg og Ingólfur, jújú þau fengu 4 fiska. Ég var bara í því að taka myndir sem koma inn von bráðar.

Ég varð svo heppin að ég náði að selja Toyotuna í gær þannig að það gengur bara allt að óskum þessa dagana í Skarðshlíðinni og Sólheimabrosið okkar nær allann hringinn. Annars er það bara brúðkaupið framundan og allir hlakka rosamikið til. Endum kannski svo bara í útilegu á lau.kvöld og fram á mánudag, hver veit...verðum allavega að prufa nýja tjaldið mar... Lifið heil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband