Leita í fréttum mbl.is

Fékk hreinlega að líta rauða spjaldið í gær

En það var algjörlega þess virði því annars hefði þetta orðið mark þannig að ég sé ekki eftir þessu fyrir fimmaura. Hefði samt alveg fyrst vilja fá gult, en neinei hann þrumaði bara rauða strax, beint framan í feisið á minni! Bætti líka upp sjálfsmarkið á lau og skoraði þetta glæsimark með skalla eftir hornspyrnu frá Jónu Benný, þvílík snilld, elska að vera sweeper og geta skorað, það eru ekki margir varnarjaxlarnir sem fá að reyna það. En leikurinn í gær gekk rosalega vel og vorum við bara hressari og ferskari ef eitthvað var, en daginn áður á móti Hetti. Byrjuðum af hörku og tókum fyrri hálfleik 4-0. Í seinni hálfleik fórum við eitthvað að stressast upp en náðum nú samt að skora sko og þær settu líka eitt, en leikurinn endaði 5-1 fyrir okkur MagnagellZ þó svo að við hefðum bara verið 11, engir varamenn og þjálfaralausar, djös snilld. Sæja kom með sterkan punkt á vellinum þar sem ég vildi byrja á móti vindi, en hún sagði að það myndi lægja með kvöldinu þannig að það skipti engu!!(klukkan var 15.00) Hlæjandi krútt. Tóti og Hreggó stóðu sig eins og hetjur og voru rosastolti af okkur og við af þeim. Takk stráksar. En við náðum markmiðinu sem var að koma okkur aftur efst í deildina sem við og gerðum og nú er það bara að halda sér þar. Ég verð reyndar í banni næsta leik en svona er þessi bolti maður veit aldrei hvað gerist. Nú er bara að reyna að ná sér eftir þessa rússíbanameðferð og hlúa að hælunum sem eru nú báðir alblóðugir og leita sér aðstoðar hjá kíró! Hvað segiru um það Sandra, áttu laust?? Er hreinlega öll í köku!

Hildur Gyða er líklega komin af skurðarborðinu núna en það átti að taka keisara á henni í morgun þannig að það verður spennandi að vita hvað hún átti þessi elska. Til lukku!! Leikjanámskeið og sund á morgun og er ég strax farin að hlakka til að hitta gríslingana mína. Við ætlum í hjólatúr ú-je. Svo er það bara útilega um næstu helgi þannig að vikan hljómar frekar spennandi hérna megin. Heiðdís mín á afmæli á morgun í útlandinu og óska ég þér innilega til hamingju músin mín. Við söknum þín sæta..... XXX Lísa og Rúní


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var geggjað að hafa ykkur.. og þið magnastelpur stóðuð ykkur frábærlega! Til hamingju með þessa leiki og að vera komin á toppinn!
Annars bið ég bara að heilsa héðan úr austurlandssólinni!
Knús og kram til ykkar...og eitt.. myndirnar lísa koma þær inn eða?

JókaSmára (IP-tala skráð) 26.6.2006 kl. 21:07

2 identicon

Já takk fyrir geggjaða helgi, þetta var algjör snelldz. Myndirnar koma inn við tækifæri, ég reyndi í morgun en það var eitthvað klikk í vélinni sjálfri, þær komu ekki inn í tölvuna..en maður má ekki gefast upp ;-D Hey já og Hildur Gyða er búin að eignast litla prinsessu...mússí´mús

Lísan (IP-tala skráð) 26.6.2006 kl. 22:02

3 identicon

æi jeij en gaman að þú minnist á mig! jibbí jibbí jeij! :D sakna ykkar líka!!!

lovelovelove

Heiðdís Austfjörð (IP-tala skráð) 27.6.2006 kl. 22:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband