Leita í fréttum mbl.is

Maður sópaði að sér verðlaununum í gær!!!

Jæja þá í þetta sinn......Bandýmótið búið og skrokkurinn ónýtur, gjörsamlega. Við erum að tala um það að harkan var svoooooo mikil í gær að stelpan er með glóðarauga, kylfufar á lærinu og mjög líklega nett tognun í bakinu! Það var illilega tekið á því og eins og vanalega þá missti Betan sig í kappinu og tuddaði ég mig í gegnum karlpungana. Fékk meðal annars að heyra að ég væri trukkalessa og að það væri ekki við hæfi að kalla mig kvenmann!! en þetta er eitthvað sem ég er ekki að heyra í fyrsta skipti þannig að ég kippi mér ekki upp við þetta. Vil helst fara að heyra einhver ný orð ef þið ætlið að halda þessu áfram svona í framtíðinni!!W00t

En það var mikið gaman og mikið grín og hafði það yfirhöndina eftir leikina. Við kennararnir fengum að sjálfsögðu bikar eins og á hverju ári en í þetta sinn var það ekki Mútubikarinn heldur fengum við búningaverðlaunin. Við vorum Barbie-dúkkur í kössunum og alles og karlarnir voru Ken, ekkert smá flott. Set inn myndir um leið og ég get. Ég var tennis barbie og vakti mikla lukku í stutta pilsinu og hvítu hárkollunni, aðallega samt hjá dóttur minni! Um kvöldið hittumst við hjá Stýru og röltum svo niður í Tjarnarborg á verðlaunaafhendinguna. Ég fékk 2 verðlaunapeninga og ég get ekki sagt að ég sé stolt af titlunum en svona missi ég stundum stjórn á skapi mínu í hita leiksins!!! 

GRÓFASTI LEIKMAÐURINN ER.................LÍSEBET HAUKSDÓTTIR

TAPSÁRASTI LEIKMAÐURINN ER................LÍSEBET HAUKSDÓTTIR 

en þetta var algjör snilld og tókst þvílíkt vel upp. Bandýmótið verður 10ára á næsta ári þannig að það verður rosaleg hátíð þá.  Ég vil þakka þátttakendum fyrir frábæran dag og senda Guðbirninum koss og knús. Hann er náttúrurlega bara langflottasturCool Dagurinn í dag einkenndist af strengjum og aftur strengjum og get ég varla rétt úr bakinu, glóðuraugað er að bögga mig því ég er með stanslausan æðaslátt í því en ég var komin heim til mín fyrir kl. 2 þannig að ég var ekki eins þunn og ég hélt að ég myndi verða og er ég því mjög fegin og hrikalega ánægð með gærkveldið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ÓMÆGOD, ég ligg hér í kasti eftir að hafa skoðað myndir á síðunni hjá Magga Kollu. Búningarnir ykkar voru þeir lang, lang, lang flottustu og það verður að segjast að hnésokkar og síðir ljósir lokkar fara þér með eindæmum vel

Ég held að ég fari bara að hóa saman í lið hérna fyrir sunnan til að taka þátt á næsta ári, fínt að gefa sér ár í massívar æfingar til að eiga séns í ykkur reyndari leikmennina

Til hamingju með titlana

Gullý (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 23:32

2 identicon

hahaha "trukkalessa"  hver orðaði þetta svona fallega !!!! en þú varst vel af þessum titlum komin,,og átt sko bara að vera stolt af þeim,þú fékkst þó allaveganna verðlaun,,meira en margir aðrir hehehehe,,klárlega snilldar kvöld

Una (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 23:34

3 identicon

Afhverju er ég ekki hissa á þessum titlum?

 Mundu bara á næsta ári að JGM er liðtækur í bandý og Oddur er ekki síður tapsár en sumir, ef þig vantar í lið!

Karen (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 22:39

4 Smámynd: ÍKÍ-kroppar

Hlakka til að sjá glóðuraugað þitt um helgina, luv u. Jónína. (flýg á fös heim á mán).

ÍKÍ-kroppar, 6.5.2008 kl. 11:31

5 Smámynd: Eva Pálsdóttir

Til hamingju með alla titlana sem þú nældir þér í!

Þið voruð ekkert smá flott og að sjálfsögðu í alveg langflottustu búningunum ;)

Ég slæst í lið með Gullý og nú verður bara farið í Bandý æfingar fyrir næsta ár hahahaha!!

Knús á ykkur öll,

Eva

p.s. mamma nældi sér einmitt í Tapsárasti leikmaðurinn-titilinn hérna um árið og ég gerði sko mikið grín að henni þá ;)

Eva Pálsdóttir, 6.5.2008 kl. 22:30

6 identicon

hahahahahaha  :)

 Þú ert snild.  Kom ekkert sérstaklega á óvart að þú næðir þér í þessi glæsilegu verðlaun.

gillinn (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband