Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Kósíheit par exelance

Snjórinn er farinn að láta sjá sig í firðinum og vonandi festist hann í þetta skipti, þá verður svo jólalegt og flott hérna í bænum í des að það er engu lagi líkt. Fólk er strax farið að hengja upp seríur og stefnir allt í það hérna í bænum að það verði búið að skreyta allsstaðar fyrir skírnina enda ekkert smá fagnaðarerindiHalo

Flott hjá Toy´s R us að senda út bæklinga um allt land af þessu frábæra dóti sem þau eru með. Gerði heiðarlega tilraun til að hringja og panta pæjudót fyrir snúlluna mína en neinei, þá sagði gaurinn í símanum "við sendum ekki út á land"!!! Hvaða fílósófía er það? Þvílíkir dúfussar og gefa mér enn meiri ástæðu til að bæta einni haturstilfinningu í viðbót í garð ReykjavíkurShocking en við þurfum sko ekkert á þeim að halda, við smíðum bara leikföngin okkar fyrir jólinGrin

Fruliche Weinachten meine Damen und HerrenHeart


Hvað er málið?

Laugardagslögin:

-Við vitum að þessi svarti Smith þarna syngur vel en, er hann það desperat að fara þara út í Eurovision að hann syngi í hverjum einasta þætti? það eru fullt af flottum söngvurum þarna úti og þetta er mjög líklega bara að vinna gegn honum en hitt, skil þetta ekki alveg!

-Það eru líka til fleiri lagahöfundar en Barði, Svala, Maggi Eiríks og Magnús Þór 

Dagskráin á norðurlandi:

-Vá hvað fasteignir skemma orðið hina skemmtilegu stund á miðvikudögum þegar dagskráin er borin í hús, maður kemur sér vel fyrir í sófanum og ætlar að chilla og skoða en nei, þá flettir maður og flettir og flettir og blaðsíðurnar eru orðnar 32 talsins þar sem bara er verið að auglýsa fasteignir...

-common, gefið út sér fasteignablað! 


Brósi til ÍA?

Ja maður spyr sig...drengurinn er að æfa með þeim þessa dagana og maður hefur ekki einu sinni hugmynd um það, svo les ég bara á fótbolti.net að kappinn tvítugi sé til skoðunar hjá ÍA, flott hjá þér strákur, heyri í þér í vikunniInLove

Annars hefur maður nú ekki mikið verið að fylgjast með umheiminum þar sem heimurinn minn snýst um litlu prinsessuna og á hún hug minn allann og ekki skammast ég mín fyrir það, bara gaman sko. Grillveisla um helgina hjá Willa og Jóku þar sem Willinn var að útskrifast í fyrrasumar og á að fagna því núna því nú er loksins tími, þannig að við ætlum að skella okkur í Túngötugrill á föstudaginn, líf og fjör

-Laugardagslögin er öll leiðinleg og líst mér ekkert á að taka einu sinni þátt í Eurovision

-Hvað var málið með að Gilzenegger var ekki líka ber að ofan...sterabólur??

-maður spyr sig!! 

 


NEYÐARKALL-inn í hús í dag, allir að styrkja!

Bræður og systur út um allan "heim" verið dugleg að styrkja Björgunarsveitina sem kemur í hús í dag að selja Neyðarkall á einar 1000kr. Þið vitið aldrei hvenær þið eigið eftir að lenda í vandæðum núna á næstunni eða seinna í framtíðinni. Það eru allir að leggja líf sitt af mörkum. Takið þáttHeart

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband