Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

úúúúú-JEEEEEEEEEEE sófi dauðans

Jújú dömur mínar og herrar við létum eftir okkur að fjárfesta í draumasófanum sem var sá eini í búðinni sem var ekki á afslætti(Lísebet Hauks alltaf með heppnina með sér!!) en núna er maður búin að sætta sig við þetta og auðvitað reddast allt svona á endanum, við VISA-rað erum aftur farnir að taka saman höndum Grin Já, þannig að þeim sem langar að hfa nóg pláss til að horfa á GREY´S í kvöld þá bara verið velkomin kl. 20.00

Kíkti til Biddu vinkonu og Tóta á þriðjudaginn eftir hádegi og fékk að kyssa litla prinsinn oh hvað hann var eitthvað lítill og sætur, 8.5merkur og 46cm, en hetjan er komin úr hitakassa og heilsast bara rosalega vel þannig að það styttist vonandi í það að þau fái að krúsa heim bara. Helgin var annars mjög kósý og lítið annað gert en að sitja/liggja upp í sófa og horfa á tellí´ið, ég bauð reyndar í kaffi á lau, bakaði skonsur, gerði rækjusalat og henti líka í eplakökupæ með hindberjasósu, ís og rjóma.....ummmmm hvað er gaman að vera til. Hjalti Bangladesh mætti svo á svæðið í gær og kom í mat til systu þar sem Rúní eldaði fyrir okkur dýrindis kjúlla með sveppum, kartöflugratín, sósu, maís og öllum pakkanum þannig að það er vel búið að fylla mallann um helgina, dísús......but no regrets, Body Pump á morgun esskurnar.... Ses


Bolla Bolla :-D

Gaman gaman í skólanum í dag þar sem krakkarnir voru allir með bollur og ekkert smá spennt að slá í rassinn minn til að ég gæfi þeim bollu, en þau eru ekki alveg að skilja að maður verði að vera vakinn með bolluvendinum en ekki bara á förnum vegi! Æji þau eru svoooo sæt. Ég át hreinlega yfir mig af bollum um helgina og svo var náttlega dekrað við mann á konudaginn og hann fæði mér í rúmið þessi elska beiði heita og kalda drykki og hollt og óhollt og þessi ljúflingur gaf konunni sinni líka geðveik náttföt sem eru svo mjúk að þetta hlýtur að vera grín. Takk ástin mínInLove

Helgin var bara snilld nema á föstudaginn því ég fór heim úr vinnu og hélt ég væri að verða lasin, en þau kuldaköst stóðu stutt og ég fór að syngja á laugardaginn í TB þar sem var trúbadorakvöld og viti menn, stelpan tók upp gítarinn og sýndi þeim hvernig á að gera þetta. Það var hörkustemmari þarna og fullt af fólki, sumir AÐEINS of drukknir og komu allt of seint og fannst við vera hallærisleg að geta ekki spilað aftur fyrir þau, óstundvísa pakk.....ekki hugsa bara um sjálf ykkur!  

Svo er það sprengi á morgun og er amma Eve búin að bjóða okkur hjúunum í saltkjöt og baunir, ummm hlakka rosalega til. Ennþá hefur ekki verið ákveðið hvaða búning öskudagurinn ber í för með sér þetta árið en það eru skipulagsdagar í skólanum þannig að maður fær ekkert að syngja. Mér finnst þetta svindl. Alltaf þegar ég var í skóla þá var sko bæði frí hjá nemendum og kennurum, ennnn jújú breyttir tímar í dag. Það er á stefnuskránni að skreppa inn á Akureyri í dag og hitta tengdó og fleiri en við sjáum bara til, erum orðið svo mikið sveitafólk að við nennum ekki einu sinni að skreppa á Akureyri...ljúfa líf, ljúfa líf...dududu

Hjalti brósi var að keppa í gær og þeir töpuðu fyrir HK 0-3 sem var b.t.w. ekki sanngjarnt og var þessi leikur bara dómaraskandall út í gegn að mér skilst. En kemur næst sæti minn. 

ciao 


Rænd á Valentínusardaginn...great!!

Já ladies and gentleman, það var hreinlega farið inn til okkar í gærmorgun á milli 9-10 og stolið heilum 40þúsund krónum, farið var inn til Eggerts og tekið 25þús og hjá bróa voru tekin 27þúsund krónur. HVAÐ ER Í GANGI?....sjiiiiiiiiiiiiiiiiiiiit hvað ég er pirruð yfir þessu krípi. Við vorum sko að safna fyrir Hollandsferðinni sem er by the way búið að panta!Ninja

Löggið var eitthvað voðaslóv og trúði mér ekki þegar ég hafði mann grunaðann en ég vona nú að þeir rannsaki þetta því ef ekki þá tek ég til minna ráða, ég er sko búin að horfa á alla C.S.I þættina og ég kann mitt fag!!!Police Annars hringi ég þá bara í Biddu mína og hún kemur og lemur þá, bara með kúlunni, er það ekki???

Ætlaði bara rétt að gera ykkur grein fyrir það að þó svo þið búið á Ólafsfirði þá þarf líka að læsa!!! Skil samt ekki alveg sko það voru 5 tölvur inn í herberginu og 2 myndavélar sem eru ennþá á sínum stað! Djös djös.....keep ears and eyes open PEOPLE....Bandit


svoltið skrítið...

Já það sem málið snýst um að það voru 6 ár í gær síðan við Maggi lentum í þessu hrikalega slysi og í allan gærdag upplifði ég það aftur og aftur og aftur og það er bara hreinlega ekki rétt hjá flestu fólki að líðanin lagist með árunum eða þá að þetta sé erfitt fyrstu tvö árin og blablabla. Mér finnst þetta hreinlega verða miklu erfiðara eftir því sem árunum líður og ég bara viðurkenni það að ég átti ömurlegan dag í gær.  Takk Eva mín fyrir kveðjuna og skilaðu kveðju til allra frá okkur í firðinum. Hins vegar er líka jafn skrítið að dagurinn í dag er allt öðurvísi og ég bara get ekki útskýrt þetta blessaða ferli.

En allir saman takk fyrir að vera svona velvakandi yfir mér og minni dramaákvörðun, en hún mun líklega ekki bara koma fyrr en rétt fyrir daginn sjálfan þ.e. 2. júní og plús það þá er þetta eiginlega dagurinn minn því við Maggi trúlofuðum okkur undir Múlanum á sjó þennan yndislega dag.  En heyrðu elskurnar mínar, ætla ekki að væla meira í ykkur. mér þykir ofboðslega vænt um ykkur öll og yndislegt að þið nennið að skrifa komment til mín......liebe liebe......Lísa


Getur einhver aðstoðað mig????

Aðalvandamálið hjá mér þessa dagana er að reyna að ákveða hvora vinkona mína ég á að svíkja. Málið er það að bæði Hallbera og Svanborg eru búnar fyrir löngu að biðja mig að syngja í brúðkaupinu sína, Hallbera bað mig úti í Norge um páskana í fyrra og Svanborg núna fyrir jólin. Það var mér mikill heiður að svara þeim báðum játandi því það er gríðarlega mikil væntumþykja til beggja aðila og myndi mér ekki þykja neitt betra en að gera þetta fyrir báðar mínar vinkonur. Svo kom nú babb í bátinn á mánudaginn....Þær ætla báðar að gifta sig 2. júní 2007!!! Hvað gerir maður þá?Frown Allar tillögur eru velg þegnar, búið er að koma upp á leigja þyrlu og fljúga á milli því önnur giftingin er á Ólafsfirði en hin er sko á Laugarvatni, tillaga nr. 2 var bara að draga með þær báðar viðstaddar, og tillaga nr. 3(sem mér fannst eiginlega auðveldust) var sú að panta mér bara utanlandsferð og stinga af!!! Það er allavega engin leið sem ég finn þar sem ég get gert upp á milli þessara tveggja yndislegu kvenna.

Hey, já við erum búin að sauma eða sko ég og mamma, eldhúsgardínur og koma þær ekkert smá flott út ma´r! Komið bara og sjáið, húsið er opið í dag frá 14-16 og svo er ég farin að syngja í útvarpinu með þeim Magga og Gulla mínum og svo ætlum við SvannaBogga að skella okkur á Akureyri og keppa í Blaki takk fyrir túkall!! Já endilega allir að mæta og sjá leggina okkar gullfallegu skutla sér í Tigerinn og smössin Devil við erum RUSSSSSSSSSSSSSSAlegar.. Mæting í kvöld og byrjar þetta kl. 20 sjitt hvað ég hlakka til. Svo er það bara body á eftir og fyrramálið og aftur haldið á Ak til að klára mótið. Verðum í mat hjá ömmu Sigrúnu þannig að það gæti velverið að við myndum droppa inn hjá góðkunningjum...spurningin er: VERÐUR ÞÚ HEIMA????

 


sweet sweet snow

oh hvað var ljúft að vakna i morgun og líta út um gluggan og sjá allan fallega púðursnjóinn sem kom í heimsókn í nótt og það snjóar enn, jesss. Var reyndar byrjað í gær þegar við vorum að koma heim úr matarboðinu frá Svövu og Kjartani og það var svo kósýInLove 

Febrúar genginn í garð og jónína og John eignuðust litla prinsessu 2. feb. sem var heilar 16 merkur og 52cm sem er næstum því jafn stór og ég var, nema ég bætti einum cm við lengdina...úje! Sáum myndir af snúllinni í gær og hún er bara alveg eins og mamma sín þessi elska. Til lukku allir saman. Annars missti ég af þessarar helgar X-factor en sögur segja að þetta séu lélegustu þættir sem hafa verið sýndir á landinu og það sé ekkert verið að sinna keppendunum, sökkar.  Talaði heillengi við Hallberu í gær og það var rosagaman og svo gerði ég tilraun til að hringja í Þórey en hún svaraði ekki þannig að ég reyni bara aftur í dag. Er farin að sakna ykkar svo mikið og ég get hreinlega ekki beðið eftir páskunum...díHeart Núna erum við hjónin að dressa okkur upp í björgvunarsveitargalla og að fara á leitaræfingu og í þetta skiptið er það hann Rúní minn sem er týndur....það er bara eins gott að við finnum hann, ég segi nú bara ekkert annað en það.

Lifið heil og farið vel með ykkur.. 


Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband