Leita í fréttum mbl.is

Maður á að segja satt

Giftur maður átti í leynilegu ástarsambandi með einkaritaranum sínum. Dag einn þegar ástríðan tók völdin ákváðu þau að fara heim til hennar þar sem þau áttu villta eftirmiðdagsstund.Eftir öll lætin voru þau orðin dauðþreytt og sofnuðu. Klukkan 20:00 vöknuðu þau og þegar maðurinn byrjar að klæða sig á fullu, segir hann einkaritaranum sínum að fara með skóna hans út og nudda þeim í grasið og moldina. Furðu lostin konan skilur ekki alveg hvers vegna hann biður um þennan greiða, en hlýðir engu að síður.Hann skellti sér svo í skóna og keyrði heim.

"Hvar hefuru eiginlega verið maður ?" spurði konan eiginmanninn þegar hann kom inn um dyrnar. "Elskan ég get ekki logið að þér, ég á í leynilegu ástarsambandi við einkaritaran minn og við erum búin að vera á fullu í bólinu allan dag, svo sofnuðum við og ég vaknaði ekki fyrr en klukkan 8." Konunni varð litið á skónna hans og sagði:

"Helvítis lygarinn þinn, þú ert búinn að vera að spila golf í allan dag !!!"Grin

Plön dagsins falla undir Akureyrarferða að ná í pápsann á heimilinu, fara á gönguskíði í góða veðrinu, matarboð hjá Ágústu og Kidda og toppa svo daginn á afmæliskökum hjá Jóhanni Gunnari bróður Rúnars þar sem hann er 16 ára í dag þessi elska. Til lukku.

Góða helgi 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

djöfullis eðal snillingur

Gillinn (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 12:14

2 identicon

Góður þessi!

Berglind (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 09:22

3 identicon

klazzi

villi Þ (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 19:07

4 identicon

AAAAAAAahahha.. góður!! :)

Bara láta ykkur vita að við fórum í 16v skoðun í dag og allt kom rosa vel út, hvað annað!! :)

 Ég er líka byrjuð að blogga á www.joka.bloggar.is og þar er komin "bumbumynd"... lykilorðið þarftu að nálgast hjá mér skvísípæ :D

Knúsíkaf..jóka (og Willi)

Jóka og Willi (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 22:32

5 identicon

jóka og villi til hamingju með kúluna.... má ég ekkert fylgjast með eða?

villi1987@hotmail.com

heehe... kv villi

villi Þ (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband