Föstudagur, 15. desember 2006
Jólaklúbbur í kvöld...hóhóhó
"Ég hlakka svo til....Ég hlakka alltaf svo til, nú er hver dagur svo lengi að líða, mér leiðist skelfing að þurfa að bíða"...Það bara hljóma ekkert annað en jólalög þessa dagana og ég bara get ekki beðið lengur en samt er alveg heil vika þangað til allt saman kemur í fangið á manni. Við erum ennþá að ákveða hvar við eigum að vera, það eru opnir faðmar alls staðar og við erum velkomin út um allt, erum að melta það að prufa að vera bara tvö heima hjá okkur en mér finnst það svolítið skrýtið en verður örugglega voðalega kósý hins vegar. Sjáum til....munið bara að hver sem niðurstaðan verður þá þykir okkur alltaf jafn vænt um ykkur öll
Jólaklúbburinn er í kvöld og ætla skvísurnar að skreyta götur bæjarins og koma með pakka og öl í Ólafsveginn í kvöld. Byrjum á dinner og svo eftirrétt og svo er spurning hvar við endum!! Hlakka svo til að fá ykkur stelpur. Leynivinavikan er í hámarki núna og fær maður nánast pakka í hverjum degi. Ég er búin að fá tvær jólastyttur, tvö viskastykki handa Rúnari kokk, englastyttu og fullt fullt af fallegum orðum svona til að peppa mann upp í skammdeginu, oh þetta er yndislegt. Hafið það sem allra best, ég fer að setja inn myndir af jólahúsinu okkar Gullý mín, ég lofa að reyna allavega að muna það!!!
Knús og kram og allt það góða.....Lísan
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Athugasemdir
Takk fyrir að hugsa til mín sæta
Vona að það hafi verið gaman í gærkveldi, efast ekkert um það enda alltaf stuð í kringum þig og þína.
Gullý (IP-tala skráð) 16.12.2006 kl. 17:16
Það er alltaf nóg að gera hjá þér Lísa mín :) Gaman að lesa hvað þið eruð að bralla!
Knús og kossar til ykkar í fjörðinn góða,
Eva og co
www.emmaosk.barnaland.is
Eva (IP-tala skráð) 17.12.2006 kl. 00:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.