Fimmtudagur, 27. apríl 2006
Magni :-D
Vá hvað ég er að fíla þessar fótboltaæfingar. Enginn þjálfari ennþá, bara spilað út í eitt og allir í frábæru skapi þannig að ég býst við því að þó að við töpum eitthvað í sumar þá skipti það okkur engu máli, það er alltaf líf og fjör hjá okkur. Já Stefanía við áttum engar smá "moves" í gær í okkar liði ;-D Enn sem stendur eru engin meiðsl komin hérna megin...7-9-13 en því miður fór líklega liðþófinn hjá henni Kollu okkur í gær, láttu þér batna mín kæra. Svo er auðvitað verið að velja búninga og sonna svo við lítum nú ágætlega út á vellinum í sumar... Ég veðja á Hummel :-D
Skemmtilegt atvik á þriðjudagsmorguninn, ég ætlaði að fara með nýja flotta hjólið mitt og pumpa aðeins í dekkin þannig að ég rölti yfir á esso hérna á móti og fékk einhvern voða ventil til að setja fyrst á. Neinei, um leið og hann var komin á og ég ætlaði að fara að dæla þá bara gjörsamlega hvarf allt loft úr dekkinu hjá mér og kallinn kom út og ætlaði nú aldeilis að sýna mér hvað ég væri heimsk stelpa að kunna þetta ekki og gerði það nákvæmlega sama hinu megin. Þessir karlmenn!!! Þannig að ég mátti leiða hjólið aftur heim. En ég fór bara niður í Sportver og reddaði þessu svo sjálf eftir að hafa keypt ventil....GO GIRLS. Hvernig er það með birtuna er hún að gera ykkur lífið leitt klukkan 5 á morgnana?? Ég gerði heiðarlega tilraun í fyrra og límdi svarta ruslapoka inn fyrir gardínurnar en viti menn, rúðan gjörsamlega sprakk í tætlur vegna hitans þannig að ég held að ég reyni að finna upp á einhverju öðru þetta árið. Hins vegar vorum við vöknuð svo snemma í morgun að við skelltum okkur bara í gymmið, kannski er það bara best....AÐ DRÍFA SIG AF STAÐ þegar birtan er farin að gjóa í augun. Annars eigum við náttúrulega bleiku grímurnar ennþá síðan í Norge :-D
En Þórey mín manni er nú farið að langa kannski pínku að sjá myndir úr Köben, hvað þá að fá aðeins ritningu frá ykkur. Knúsið tvíbbana frá okkur...Kveðja Lísa og Rúní
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Athugasemdir
Æ þú veist stundum er mar bara svo busy... er e-ð endalaust löt að uppfæra núna en þetta fer að koma - er enn að taka upp úr töskum :) Alltaf að hugsa um þessa geggjuðu ferð okkar - en varðandi sólina þá fórum við bara í IKEA og keyptum okkur gluggatjöld til að draga fyrir birtuna :) virkar pínu allavega... knús og kossar frá okkur og allar myndir eru í vinnslu en Köben var nú að mestu komið!!! XXX ÞSS
Þórey (IP-tala skráð) 28.4.2006 kl. 22:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.