Sunnudagur, 2. júlí 2006
Útilegustemmari um helgina
Við hreinlega skelltum okkur í Vaglaskóg á föstudaginn í blíðuveðri á eftir bróður vor og fjölskyldu og hittum Birnu og Auðunn úr Mörk eiginmann hennar, en hann ásamt fjölskyldu sinni, á land við hliðina á fjölskyldusvæðinu í Vagló sem heitir Mörk og við gistum þar á þessum fínasta stað. Brugðið var á leik eins og í öllum útilegum en hælsærið lét mig alveg vita að það væri ekki gróið sko! Fórum í krikket og frisby og fótbolta og gönguferð upp á Sjónarhól og heimsóttum Línu langsokk, Níels og hestinn auðvitað fengum Hákons gæðaslím með okkur heim! Brunuðum í Sund á Stóru Tjörnum í sól og blíðu og svo rigndi líka smá en það er bara að vera ávallt viðbúinn, sem við vorum! Stjáni og Björn Ægir léku á alls oddi svo var auðvitað líka keppt í Boccia og Kubb sem mitt lið vann Naturlich.
Nú er það bara vonandi að maður fari að komast í takkaskónna því nú verður sko tekið á því á æfingum þó það væri nú ekki bara nema ti að hrista allt góðgætið af sér sem maður tróð ofaní sig um helgina. Össs. Hildur mín til hamingju með stóru prinsessuna, hún er algjört æði.
Á föstudaginn var svo hún Hanna okkar tekin í gegn á föstudaginn á hádegi og gæsuð af okkur hinum. Ég var reyndar ekki með nema í upphafsatriðinu vegna löngu ákveðinnar útilegu en þið ráðið bara hvað þið verðið lengi reiðar við mig, svona er þetta bara Byrjuðum á að láta kalla hana á fund í Mjólkursamlaginu og við mættum þar með kúrekahatta og reiðbuxur og hún var klædd eins upp í sett í gúmmískó og ullarsokka, svo var brunað á Dalvík á hestbak. Hún var látin elda í gamla húsinu þeirra á Óló og tekið var svo á því í Jóga hjá Snjóku áður en farið var á trillu og Sjávarútvegsfræðingurinn látinn sýna okkur hvað hún væri klár á veiðafærin!!! Planið var næst að koma í land út á kleifum og fara upp á Jaðar að grilla og súpa öl og gekk víst á ýmsu á meðan ég kúrði bara í tjaldi einhversstaðar. En ég læt nú sjá mig í Brúðkaupinu sem er aðeins eftir 20 daga þannig að Birgir þyrfti eiginlega að fara að koma heim að sjónnum. Annars er ég farin að henda upp úr töskum og ganga frá eftir þessa geggjuðu ferðahelgi.... Over and out.. Lísa
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.