Leita í fréttum mbl.is

ó-je...nú verður sko tekið á því eftir svakalegar steikur og kappát í u.þ.b. 14 daga!!!

Sjitt hvað maður er ruglaður að gera sjálfum sér þetta. En kannski finnið þið ekki eins mikið fyrir öllu þessu reykta eins og ég því eftir allt mitt heilsuleysi á síðasta ári þá er ég svoddan auli hvað mat og drykk varðar og núna er ég alveg að ná af mér afmynduninni sem átti sér stað í andlitinu á mér eftir jólahátíðina...bjúgur nammi namm, set EKKI inn myndir seinna af mér Grin Annars var hörkustuð og kósíheit um jólin og fékk maður ýmislegt gott og flott eða eiginlega bara allt, var samt eitthvað voða tilfinningarík á aðfangadag og já tölum ekkert meira um það! Rúní minn gaf mér síma og kaffivél og DVD og allskonar, algjör dúlla og svo fékk ég töfrasprota og hárblásara og allskonar styttur og fínerí og svo fékk Rúní þvílíkt flotta gönguskó og legghlífar sem hann var ekkert smá ánægður með.

Á 2. í jólum ballinu var stappað að fólki og ég man ekki eftir helmingnum af liðinu en það eina sem ég veit að ég hitti alla og það var hrikalega gaman. Svo einkenndust þessi jól bara svona í stórum dráttum á því að fara í heimsóknir kl 23 á kvöldin og sötra eitthvað rautt eða hvítt og spjalla og spila og ef við kíktum ekki í heimsókn þá kom einhver til okkar þannig að það var engin pása og ekkert smá kósý. Áramótapartýið fór fram hjá Svövu og Dadda í hörkustuði og meira segja varð Bökka full af 2 bjórum held ég, eða var hann kannski bara einn Bökka???W00t

Hins vegar í fyrsta skipti á ævinni þá gerði ég ekki megrunar áramótaheit því á ballinu voru allir að segja mér hvað ég liti vel út á ballinu 2. í jólum(sáu mig sem sagt ekki 1.jan með bjúgað), þannig að eina sem ég óska mér á þessu ári er betri heilsa og ég stefni líka að því að vera jákvæðari og já auðvitað rosalega ástfangin..InLove

En elskurnar ég vona að allir séu ánægðir og takk fyrir allar kveðjurnar sem ég var bara að sjá núna, sorry nennti ekki að opna tölvuna mína um jólin...Sjáumst á nýja árinu með bros á vör


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða mórall er þetta, ég drakk allavega þrjá ef ekki fjóra bjóra þetta kvöld  og kom ekki heim fyrr en hálf sex, sennilega met hjá mér í langri útivist (mamman alveg að missa sig á fyrsta djamminu) en allavega takk fyrir skemmtilegt kvöld hafið það gott!
 kv. Björk

Björk Óladóttir (IP-tala skráð) 4.1.2007 kl. 16:25

2 identicon

Ég held að það hafi ekki verið mikið meira en 2 Bökka 

Allavega var rosa gaman að hitta ykkur um jólin og ég hlakka ekkert smá til að fá ykkur í heimsókn til Hollands 

Er búin að vera á fullum í vorverkunum í garðinum í 12 stiga hita, dugar ekkert minna en að  byrja að undirbúa heimsóknina

Knús og kram H

Helena (IP-tala skráð) 4.1.2007 kl. 21:52

3 identicon

Takk fyrir skíðaferðina hehe verðum að gera þetta aftur og þá kannski fleiri en eina ferð. Lov jú

Stefanía (IP-tala skráð) 9.1.2007 kl. 17:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband