Leita í fréttum mbl.is

Lífið er yndislegt

Sjitt það er svo mikil hamingja í gangi að ég bara veit ekki hvar ég á að byrja. Ég vaknaði í morgun við það að maðurinn minn færði mér rjúkandi kaffibolla í rúmið, þá var hann búin að gefa dóttur okkar pelann sinn, skipta á og koma henni út í vagn. Ég klæddi mig og kom niður stigann og þar beið mín mogginn og sól sem stakk mig í gegnum gluggann. Skíðafærið er geggjað í dag og erum við búin að ákveða að skella okkur á það fyrirbæri. Þórey, Elli og co eru að koma á morgun í páskahittinginn 2008 á Ólafsirði city og við bara getum ekki beðið eftir að knúsa þau. Við fórum í netta Akureyrarferð í gær og skutluðum Jónínu sætu í flug suður, fengum okkur Brynju-ís, keyptum okkur ástarpáskaegg,  heimsóttum Hansínu og Þorstein og nýja prinsinn sem fæddist í gær. Harpa og Bjöggi eignuðust líka strák í gær þannig að skíðaheimurinn er í góðum málum, innilega til hamingju þið. Jói og Hulda eignuðust líka strák þannig að það er eins gott að maður standi sig í að fjölga kvenfólkinu, svona svo þetta endi ekki á einn veg í framtíðinni!! Hallbera og Smári koma svo á þriðjudaginn og erum við ennþá spenntari yfir því að sjá hana og litlu twillingerne í bumbunni á henni. Þannig að þemað þessa dagana er hamingja, hamingja, hamingja og núna ætla ég að fara að gera það sama og allir þeir sem eru búnir að lesa þessa hamingjufærslu...og æla AF HAMINGJUW00t  Mér finnst best að nýta þessar hamingjustundir rosalega vel og lengi því maður veit víst aldrei hvernig eða hvar maður endar og ég vona að ég eigi ekki eftir að taka brunann á hann Rúnar minn eins og þessi kona...."Brenndur lifandi út af skítugum fótumKínversk brúður kveikti í eiginmanni sínum með þeim afleiðingum að hann lést, að því er fram kemur á fréttavef Reuters.Nýbökuð hjónin voru undir áhrifum áfengis þegar þau lögðust til svefns eftir hatrammt rifrildi. Lokahálmstráið hjá eiginkonunni reyndist vera að bóndinn var ekki búinn að þvo sér um lappirnar og greip hún til þess ráðs að kveikja rúmfötum hans meðan hann svaf. „Þegar hann vaknaði byrjuðu þau aftur að rífast en svo hneig hann niður. Konan slapp ómeidd frá atvikinu en maðurinn var látinn brenna“, greindi heimildarmaður frá."

Njóttu dagsins, þú veist aldrei hvort þetta eigi eftir að verða þinn síðastiHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

svo kem ÉG auðvitað í vikunni!

hlakkar reyndar orðið verulega til.

en gaman að sjá að stóllinn litlu virðist vera nýtast einstaklega vel :)

Hjalti (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 11:14

2 identicon

Maður lyftist allur og gleðst þegar maður les um svona mikla ást á milli ungra hjóna. Gangi ykkur vel á Ólafsfirði. Þoli ekki þetta nýja nafn. Með beztu kveðju.

bumba (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband