Leita í fréttum mbl.is

Verð að deila þessum svona í skammdeginu :-D

 Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka. Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 5000kr seðlar flugu úr pokanum annað slagið. Eitthvað fannst honum þetta dularfullt og gekk upp að konunni.

    "Góðan daginn væna mín" sagði hann. "Hefur þú tekið eftir því að það eru 5000kr seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?" Konan stoppar og lítur bak við sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna. "Æ, þakka þér fyrir væni minn, ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp".

Þegar konan ætlar að leggja af stað að týna upp seðlana, stöðvar lögreglumaðurinn hana. "Engan asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann ruslapoka af 5000 köllum?, Varstu að ræna banka?" Gamla konan brosti. "Nei það gerði ég nú ekki, en það vill svo til að bak við garðinn minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi, þá koma oft ungir menn og míga í blómabeðin hjá mér, svo ég tók upp á því að standa þarna með garðklippurnar og segja: "5000kall eða ég klippi hann af"..."Ja-há, þetta er áhugaverð hugmynd", sagði lögregluþjónninn hugsi. "En hvað ertu þá með í hinum pokanum gamla mín?"

"Það eru ekki allir sem borga..."LoL

 

Njótið dagsins kæru vinirWink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

áááátttsss !

Gillinn (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 15:56

2 identicon

Hihi ojjj góður þessi.

Heiða (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband