Leita í fréttum mbl.is

Ledgerinn er dáinn :-/

Díses hvað ég fékk mikið sjokk í gærkveldi þegar ég var að flakka á skjánnum og lenti á Sky News og sá þá fyrisögnina um að sætasti sæti hefði fundist látinn á heimili sínu kl. 20:30 vegna lyfja-overdose! Ég bara trúi þessu ekki, er meira að segja nýbúin að horfa á "10 things I hate about you" myndina okkar Hallberu og Þóreyar og dást af þessum riddara. Ég hringdi náttúrulega í Hallberu og sagði "Veistu hver er dáinn?" kannski ekki besta setning sem maður byrjar á í síma, en ég bara varð....hún var eiginlega hálf fegin þegar nafnið var ekki af neinum nákomnum eða einhverjum sem við þekktum, en engu að síður í mínus með mér yfir þessu sæta gæjaCrying En þar sem ég get ekki sent aðstandendum hans blóm þá hef ég ákveðið að tileinka næstu kvöldum Heath Ledger og horfa á myndirnar hans þar sem ég á þær allar  og að sjálfsögðu  mun ég byrja á "10 things...", því næst "Knights Tale" og svo framvegis, þannig að þeim sem langar að vera memm.....mætið bara og já...komið með nammi eða ís eða köku óg rjómaW00t

Já það gengur sem sagt frekar erfiðlega að koma sér úr jólaátinu en okkur er alveg sama þar sem Karen Helga er farin að spítta í og drekka meira af mömmu sinni og það er mín brennsla! Það eiga tveir snillingar stórafmæli í dag og vil ég óska þeim innilega til lukku með það. Í fyrsta lagi er það hún yndislega amma mín og nafna Lísa. Hún er 70 ára þessi elska og talaði ég við hana í heilar 50mín áðan og alltaf finnst mér hún jafn fyndinWizard Hinn snillingurinn er hann Óli á Bjargi og er hann 50 ára í dag sem bauð okkur í PARTEI á laugardaginn kl. 20 en ég gleymdi að spyrja hvort maður mætti koma með barn???!

Karen Helga er búin að lifa í 104 daga og ég fattaði það um leið og þessi blessaði Borgarstjórn hrundi aftur því hún fæddist á þeim degi þegar hún hrundi síðast og meira að segja á sama tíma! En hún er mun hraustari en þetta lið í borginni og stendur sig í gegnum allt, litla hetjan mínHeart Ætlum að reyna að byrja að blogga aftur hér en það er svona þegar prinsessan hefur hug manns allann að maður uppfærir bara hennar síðu, endilega kíkkið á hana....www.barnanet.is/lif 

 

Gísli til hamingju með sveindóminn 1995Wizard

Kiddi góða ferð til Orlando, viltu kaupa "Salt water taffy" handa mér?Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

takk,,,,,sú þýska stóð fyrir sínu,,,,ætli henni hafi ekki bara staðið ! ?

Gillinn (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband