Leita í fréttum mbl.is

Reykjavíkurferð dauðans!!!

Já æji ég er búin að vera frekar löt að blogga og á meira að segja ennþá eftir að gera ársyfirlit eins og allir í kringum mig, en ég hef reyndar aldrei verið þekkt fyrir að gera eitthvað eins og allir hinir þannig að ég ætla bara að sleppa því að vera að brasa eitthvað í því. Það sem er eftirminnilegast af síðasta ári er hreinlega að við erum ennþá lifandi!!!Heart En jújú við prufuðum ýmislegt, fórum á árshátíð til London, tókum páskaferð til Norge og fórum í framhaldi af því til Köben, keyptum okkur jeppa, keyptum okkur einbýlishús, fluttum á Óló og fengum okkur nýjar vinnur og við áttuðum okkur líka á því hvað er gaman að vera tilInLove

Nýársheitið var eiginlega ekkert, nema að betri heilsa komi þetta árið þannig að ennþá hefur það bra gengið ágætlega. Ég var að koma heim úr afmælinu hans Fjalla félaga og vávááá hvað það var gaman að hitta loksins alla sem maður hefur bara heyrt talað um. Skemmtiatriðin voru geggjuð og þvílíkur stemmari á dansgólfinu með Freysa, Danna, Hildi Völu og Davíð Loga. Davíð Óla var hins vegar ekki eins hress og endaði ja....ekki orð um það meir!!! Geggjað að hitta Freysa sem var að kenna með mér í Austria því hann lofaði mér að koma norður í skíðaferð og taka púðrið í fjöllunum í kring í gegn!!! Reyndar sá ég fyndnustu mynd í heimi af vini mínum Fjalari en það var þegar hann var u.þ.b. 8 ára og fékk litli peyinn HETTUSÓTT og JESÚS JESÚS hvað hann var fáránlegur, það var eins og hálsinn væri að springa og hann leit út eins og eitthvað sem maður photoshoppar, skal reyna allt sem ég get til að redda mynd af þessu, þið bara verðið að sjá þetta! Utan við afmælið þá gerði ég svo sem ekkert nema að eyða peningum og er ég ekki ennþá farin að þora að opna heimabankann, fjúffff... Jú ég fór með Írisi dónastelpu og borðaði SUSHI...ummm það er ekki til betri matur í heiminum, sjitt-örinn. Enda átum við 8 diska(tek það reyndar fram að þeir eru mjöööög litlir) en vá hlakka bara til að fara aftur suður til að gera fengið mér sushi. Tók einnig á því í IKEA og keypti pakka fyrir hina og þessa. En núna er það bara back to reality og vinnan kallar. Take care elskurnar og munið að snjórinn er hollur...ciao


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband