Fimmtudagur, 10. apríl 2008
What is up with the UNIVERSE?!
Feðgin sem eiga barn saman biðja um skilning.. UHHH NEI, ekki frá mér allavega OJ ég meina mér þykir ofsalega vænt um pabba minn sko en er þetta nú ekki einum of langt gengið
Áströlsk feðgin, sem sakfelld hafa verið fyrir sifjaspell, komu fram í fréttaskýringarþættinum 60 Minutes í gærkvöldi og báðu um viðurkenningu og skilning á ólöglegu sambandi þeirra. Þau eiga saman níu mánaða gamalt barn.
Jenny Deaves var 31 árs gömul þegar hún kynntist föður sínum, John, á nýjan leik eftir tæplega þriggja áratuga aðskilnað. Fljótlega fór hún að líta á hann sem kynveru. Ég og John erum tveir fullorðnir einstaklingar, sagði hún og var að ítreka að þau bæði væru sátt við sambandið. Við viljum einungis njóta skilnings og virðingar.
Níu mánaða gamalli dóttur þeirra heilsast vel. John telst vera faðir barnsins en einnig er hann afi hennar. Hún er þriðja barn Jenny en hún á tvö börn fyrir úr öðru sambandi.
Samkvæmt Jenny þá fór hún að líta á föður sinn sem einstakling fyrst og fremst frekar en föður og henni þótti hann alls ekki illa útlítandi. John segist hafa vitað það fullvel að það væri ólöglegt að stunda kynlíf með dóttur sinni en hann hefði hreinlega ekki getað ráðið við sjálfan sig. Tilfinningarnar tóku völdin. Ég vissi að þetta væri ólöglegt en hvað með það, hugsaði ég, sagði John.
Feðginin eru á þriggja ára skilorði eftir að hafa verið fundin sek um sifjaspell. Meðal skilyrða er að þau mega ekki njóta líkamlegs samneytis. Í dómsúrskurðinum kemur fram að parið eignaðist barn árið 2001 en það lést við fæðingu vegna hjartagalla....
Oh really...I wonder why?
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.