Föstudagur, 7. júlí 2006
SsangYong - Kyron Turbo Diesel
Öss öss þvílíkur bíll sem við vorum að versla á gær, ég bara get ekki hætt að horfa á hann eða hugsa um hann, díses hvað hann er GEÐVEIKUR og að keyra hann um..mm.M Hlakka bara til að fara að þruma í gegnum skaflana í Múlanum í vetur, ekki það að Corollan hafi ekki staðið sig vel, það var bara orðið verra þegar það sást ekki í hana vegna snjóa og litbrigða!! Svona númer 2 á fréttalistanum þessa dagana er auðvitað BlúsHátíðin sem hófst í gær á Ólafsfirði þar sem fram komu; Hundur í óskilum, Túpílakar o So stórsveitin og grínistarnir....HVANNDALSBRÆÐUR. Fullur salur af fólki og gríðarleg stemning í salnum og vá hvað var gaman. Maður var búinn að hlæja sig hásan af textum, framkomu, ljóðalestri og hálfvitagangi í þeim félögum, takk fyrir mig.
Annars kúrðum við bara í fellihýsinu í nótt við Rúní því það var bara troðfullt hús hérna í Garðstígnum en það var voða kósí og alltof heitt. Edda og Brandur eru nebblega í okkar íbúð á Ak út af Esso mótinu sem þýðir að Akureyrarbær er troðfullur og er búin að vera síðan á miðvikudag. Vá hvað þolinmæðin mín er lítil á götunum þegar allt er fullt en ég horfi bara á mælaborðið mitt og verða þá strax glöð yfir nýja kagganum...sjitt. Pollamótið er líka í fullum gangi og var okkur Magnastelpum bara allt í einu meinaður aðgangur, vorum sko búnar að fá leyfi til að keppa en fyrst við erum svona góðar þá bara þorðu þeir ekki annað en að skrá okkur úr keppni og notuðu það sem afsökun að við mættum það ekki því við værum með lið í deildinni, en samt mátti 3. deild karla vera með lið!!! Hjelló? Ég veit ekki betur en ég sé hreinlega skráð í 3. deild karla og sé í eins leikja banni!! tjékkitát: http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=36727?&flash=true !! Þetta er ekki samkvæmt sjálfu sér þetta lið. En svona er þetta bara. Ég hugsa bara aftur um bílinn og brosi allann hringinn
Gullkorn af leikjanámskeiðinu í gær "(the boy)Já mamma ætlar að láta skjóta einn hest því hann er eitthvað lasinn. "Þinn hest?(spurði ég)", "(hann), sko ef hún gerir það...(smá bið og mikið hugsað).... ............."ÞÁ SKÝT ÉG HANA"...dúlli dúll. En þetta var allt að enda í dag og þakka ég þessum krílum fyrir mig, ég á svo sannarlega eftir að sakna þeirra....XXX Lísa
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.