Leita í fréttum mbl.is

Ég á líka afmæli í dag :-D

Jæja þá er maður kominn yfir fyrsta erfiða aldursfjórðunginn og orðin 26 ára. Ég tek það samt ekkert nærri mér að vera að eldast, hlakka bara til að takast á við lífið og tilveruna. Verð nú reyndar að segja að afmælisundirbúningurinn byrjaði ekkert of vel þar sem hjartað mitt var eitthvað að stríða mér þannig að ég þurfti að afboða veisluna sem ég ætlaði að halda í gær. Lág bara í beddanum og reyndi að slaka á og ligg þar enn. Ætla nú samt að reyna að fara í vinnu á eftir og halda þá kannski bara smá boð á morgun því Maggi hefði hvorteðer átt afmæli þann dag og við verðum að koma þessum tertum frá okkur sem var verslað í í gær :-D

Ég er búin að fá tvo afmælissöngva í tilefni dagsins, einn frá Rúnarinum og svo hringdi Þórey og tvíburnarnir og sungu fyrir mig...o takk þið, þetta var æði. Djammið á laugardaginn var rosagaman og vorum við illa grobbin af Hjalta, enn og aftur til hamingju. Skelltum okkur á Kaffi ak í millitíðinni en ég reyndar nennti ekki aftur í Sjallann þannig að ég veit ekkert hvernig stemmarinn var þar, en það var hörkustuð og kom ég heim með eitt stk myndavél sem Hansína bað mig að geyma og eftir myndunum að dæma þá held ég að Birnan mín eigi þessa vél, en kemur í ljós á æfingu í kvöld held ég!!! Hansína þú færð samt verðlaun fyrir flottasta outfittið á laugardagskvöldið. En ég bið ykkur að lifa heil og senda mér fallegar heilsuhugsanir af öllu HJARTA :-D       Auf Wiedersen 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með daginn sæta okkar :) Vertu í bandi ef þú átt leið um Árósa einhvern tímann!! ;) Hafðu það ofboðslega gott í dag og alltaf.
Knús og kossar,
Eva, Atli og Magnús Máni

Eva Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 22.5.2006 kl. 14:17

2 identicon

Halló dúllan mín!
Til hamingju með 26 árin ;)
Hafðu það sem allra best í dag...
kossar og knús
Jóhanna

Jóhanna (IP-tala skráð) 22.5.2006 kl. 15:24

3 identicon

Til hamingju enn og aftur snillinn minn ;) Og þúsund þakkir fyrir myndavélina...hehehehe...saved my day ;) Láttu þér svo batna!!Leikur á fimmtudaginn skilurðu og þú verður að vera í vörninni!!!!!!

Birna (IP-tala skráð) 22.5.2006 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband