Föstudagur, 24. október 2008
Það er svo gaman að vera til
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður
ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að
Ég ákveð því að velja að vandamálin fá
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti
Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít
Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
þetta er góður dagur, hafðu það sem best
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 12. október 2008
Til hamingju með mig
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 6. október 2008
Hún náði að tala mig til!! Herba til sölu...kostar eina tölu!!!
Vökvamettun
Kraftur og úthald
Betra frásog
Andoxunarvörn
Einstök afköst einstakt bragð! H3O Pro Isotonic er tær drykkur með réttu salta- og kolvetnajafnvægi og mildum sítrónukeimi. Unnt er að reiða sig á hann til þess að endurnæra sig, bæta vökvabúskapinn og ná sem allra bestri frammistöðu hver sem íþróttagreinin er.
Laus við gervisætuefni
Laus við gervibragðefni
Laus við rotvarnarefni
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 30. september 2008
400 Kcal?!!!
Ja-hérna-hér...ég var að lesa grein í morgun um hana Jónínu Ben og hennar detox kúr í Póllandi og þar kemur fram að prógrammið hjá henni felst aðallega í því að fólk fær ekki að borða meira en 400 hitaeiningar á dag. Á dag..... Á DAG!!! Hvaða bull er þetta, ég er ekki hissa á að manneskjan hafi lést um 17 kg á viku, okey kannski tveimur!!! Við skulum sjá...... Matseðillinn myndi þá líta út einhvern veginn svona ef ég dreifi bara hollustu og óhollustu á milli daga svona til að halda manni "sane":
Mánudagur: Stór kálhaus, appelsína og 2 tómatar
Þriðjudagur:Soðinn fiskur með gúrku, Rófur í eftirmat
Miðvikudagur: Einn Bjór og 2-3 hnetur með af barborðinu
Fimmtudagur: Sellerí, lítil skyr dós, Herbashake
Föstudagur: Kjúlli með sveppum og 1 msk af hrísgrjónum, kannski smá soyja sósa, radísa í eftirmat
Laugardagur: Mars-stykki
Sunnudagur: Tær súpa með grænmeti útí og gulrót í eftirmat
Ég hugsa að ég myndi bara taka Laugardagsmatseðilinn alla daga og choppa stykkið niður í morgunmat, morgunkaffi, hádegismat, kaffi, kvöldmat og kvöldkaffi það eru 6stk og ég hugsa að ég myndi skera það þvert yfir svo það myndi lúkka stærra!!! En ég segi bara...Guð veri með þessu fólki.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 20. september 2008
Mig langar í nýjan bíl NÚNA!!
en maður verður víst bara að bíða þolinmóður, bæði eftir að hinn komi úr viðgerð og að leita að öðrum á netinu og það gerir mann alveg hreint geðveikan að fara yfir þetta. Djöfull er til mikið af bílum! Erum að leita að LandCruiser 80 og já hann má vera mikið keyrðu og já hann má vera gamall. Viljum bara vel með farinn, góðann og breiðan bíl sem við getum notað til að keyra yfir kjöl án þess að nötra í sundur eins og sumar og borgarjeppanum okkar. Aldrei aftur skal ég kaup mér nýjan, flottan borgar/frúar-bíl
Núnar eru allir í firðinum að jamma....enda tvennt í boði í augnablikinu. Lokahóf hjá strákunum okkar í Leiftri/KS og svo er Réttarball út í Hringveri hjá frjárbóndunum öllum. Þvílík upplyfting orðin þar og eru karlar með rollur á pallinum á öðrum hverjum bíl, ætti að vera auðvelt að redda kjéti fyrir veturinn allavega. En við Rúní nenntum ekki út. Fórum frekar í tiltekt og það var ekki einu sinni mín hugmynd, ég elska manninn minn Hann langaði svo að skrifstofan/tölvuherbergið yrði fínt fyrir veturinn og vinnurnar okkar þurfa ansi mikið möppupláss og vinnuaðstöðu þannig að við erum búin að henda 3 ruslapokum þaðan út, tveimur tölvum og fuuuuuulllt af snúrum sem kappinn átti á lager. Líf og fjör hjá okkur á Laugardagskvöldi. Enda er bannað að vera trött á morgun því við ætlum loksins að fara saman í fjallgöngu upp á Múlakolluna kl. 11 í fyrramálið. Allir velkomnir sem vilja með, hittumst í Undralandinu og veriði stundvís, takk
Annars er heimilislífið æði, vinnan frábær og krefjandi, þjálfunin æði, ungbarnasundið æði, Karen Helga sjúklega sætust, familían ágætlega heilsuhraust og kartöfluuppskeran brilliant.
Bið ekki um neitt betra.
Betan kveður
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 29. ágúst 2008
Eins???
Loksins er ég búin að fatta hverjum Guðmundur Guðmundsson líkist hvað mest. Ted Mosby, einn af mínum uppáhaldskarakter í How I met your mother hefur sama svipinn, nema kannski aðeins dekkri í yfirlitum?!
Erum á leið suður í dag í vonda veðrinu í brúðkaup. Ekki búast við að við hringjum í ykkur því við erum að fara í ástarferð án Karenar Helgu og er hún að fara að sofa annarsstaðar í fyrsta skipti síðan hún sá dagsins ljós. Hafið það gott elskurnar og munið að vera kyssast daglega
L
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 22. ágúst 2008
ÞAÐ ERU ENGIN ORÐ YFIR ÞESSUM FRÁBÆRA ÁRANGRI
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14. ágúst 2008
What a day, what a day
Já það má sko með sanni segja að þessi dagur hafi verið geggjaður. Byrjuðum snemma við fjölskyldan þar sem Karen Helga vakti okkur rétt fyrir leikinn þannig að við horfðum á hann við mæðgur á meðan pabbinn kúrði og hraut en opnaði annað slagið augAÐ til að athuga stöðuna. En þvílík óheppni í endann, ætla ekki að tjá mig um það meira því þá verð ég svo svekkt og það hefur neikvæð áhrif sem er svo vont svona rétt fyrir draumaheiminn.
Litli frændi minn var í pössun hjá mér í dag og við vorum að syngja "hakuna matata" en hann var ekki alveg að ná því og sagði alltaf "haTuna MaKaKa" ehhehe oh hann er svoooo mikil dúlla hann Kristján Már og svo var hann alltað að andvarpa upp úr þurru annað slagið og þegar ég spurði hvort að það væri eitthvað að angra hann þá sagði hann: "já, ég þoli ekki þennan vind úti í dag, mig langað út en ekki í þessum vindi"...sætastur
Við kíktum á Gullu og Steina og horfðum á leikinn mikla FH-Aston Villa sem endaði eins og þið vitið og ekki meira um það og svo hringdi ég auðvitað í afmælisbarnið hann Kidda og Rúní sendi hinu afmælisbarninu kveðju sem við þekkjum, hún Þorgerður og vonum við bara að þau hafi átt geggjaðan dag eins og við. En ég held bara áfram að vera djollí og segi ÁFRAM ÍSLAND
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. ágúst 2008
Ví gaman að gera brosakalla...
Well well punktablogg ágústmánaðar
-Ferðalög voru um Kjöl, í Kerlingarfjöll, Hveravelli, Hveradali, Gullfoss, Geysi, Laugarvatn, Þingvelli, Akranes, Hvítársíðu, Brandarskarð, Hólkot meðfylgjandi tanntöku, bílveiki og niðurgang hjá lillemus
-Versló fór fram í rólegheitum í sumarbústaðinum okkar í Hólkoti, kíktum aðeins á Akureyri svona bara til að vera ástfangin og kyssast á rauðu ljósi
-Í vikunni fór ég suður og kláraði prófið og verklegu tímana og er orðin ungbarnasundskennari
-Kiddi fékk bóner í Bónus...eða mér heyrðist hann segja það, smá misskilningur í gangi
-Kíktum á fiskidaginn og það voru b.t.w. ekki 30.000 manns en gaman samt. Fórum með Línu og Gunnari og co, hittum fullt af ÍKÍ-ingum þ.á.m. Áslaugu og Unna, Birnu og Tóta og Erlu og Jónas þannig að það var bara LÍF OG FJÖR með troðfullan munn af fiskiborgurum!!
-Dagurinn í dag fór svo bara í það að mála herbergið hjá prinsessunni, leika úti í mölinni og æfa okkur að moka í fötu því leikskólinn hefst eftir 6 daga og Karen Helga er 10mánaða á morgun, dísús. Pabbinn slóg garðinn á meðan og life is beautiful. 1 vika eftir af sumarfríinu og ég ætla að nýta hana vel með bloggleysi
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 23. júlí 2008
Freak of nature
That´s me for sure. Því það mætti halda að ég hafi aldrei búið í Ólafsfirði. Ég horfi á fjöllin hérna eins og ég hafi aldrei séð þau og það er einhver ólýsanleg löngun sem grípur mig og leiðir hugann að fjallgöngum, sem ég dríf mig í, ásamt góðum félögum sem halda í við mig Bloggið í dag einkennist af einni slíkri gönguferð í Fossdal, svo bara njótið. ÉG, TÓTA, ERLA OG HELENA
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006