Leita í fréttum mbl.is

Það er svo gaman að vera til

HeartÉg vakna þennan morgun og vel að hann sé góður 
vel að  hann sé yndislegur, myrkur og hljóður 
ég vel að kúra um stund og staðnæmast  við það 
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar aðHeart

HeartÉg ákveð því að velja að vandamálin fá 
vistuð séu hjá  mér til þess eins að ljá 
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti 
ég tek  þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég getiHeart

HeartOg eftir litla stund ég vel að fara á fætur 
faðma  þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt   
kex smyr með osti í blöðin svo ég lítHeart

HeartAð endingu ég segi við þig sem þetta lest
þetta er  góður dagur, hafðu það sem best 
ég óska þess að hugsanir fallegar þig  finni 
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinniHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Lísa mín takk fyrir þessa fallegu vísu, eða hugvekju.... því þetta vekur mann svo sannarlega til umhugsunar um hvað það er gott að að vera sáttur við lífið og tilveruna    Hver samdi þetta ??

Eigðu virkilega góða helgi og ég hlakka til að sjá þig annaðkvöld, mín kæra vinkona... mæti með olympíu

Stórfrænkan (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 20:35

2 identicon

blessuð skvís. flottur texti hjá þér. maður gleymir sér alltof oft í einhverri neikvæðni nú í dag en það hjálpar ekki neitt.. gott að fá áminningu við og við ef maður er að gleyma sér í einhverju rugli.

 bestu kveðjur úr grindó, við komumst ekki norður þessa helgi en munum stefna norður næstu helgi. kannski við getum þá mælt okkur mót. Þrekmeistarinn þá og kannski kíkt á það saman..

tóta og tinna litla (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 09:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband