Leita í fréttum mbl.is

GLEÐILEGT SUMAR :-D

Kæru vinir og ættingjar nær og fjær! Erum stödd í firðinum fagra í second páskafríi og þetta er þvílík skíðaparadís hérna megin. Sól og blíða, þannig að brúnkan er farin að láta sjá sig og freknuskott hér og og þar. Rúnar tók fyrstu skrefin á gönguskíðum í gær og stóð sig eins og hetja í göngugalla af mér...Dead sexy...believe me!! Sviskíðin klikkuðu hins vegar aðeins í dag hjá kappanum þar sem gömul íþróttameiðsl rifu sig upp eftir skíðagönguna :-) Fórum hins vega í gymmið og sund í morgun þannig að það er gríðarlega mikil virkni í fríinu. Ég fór með frænkur mínar og sýndi þeim smá takta og kenndi svo Hrund og Frigga og félögum hvernig ætti að gera þetta almennilega!!

Kíktum á bróa í gær og þar gerðist hlutur sem bróðir minn kafnaði næstum því yfir af hlátri. Þannig var það að Rúnar var að laga tölvuna eitthvað fyrir hann og rekur svona svaðalega við og allir litu upp. Ég alveg..."Rúnar" með litla hneykslunartóninum, þá sagði brói "Vo´a, ég hélt það væri að hrynja af þakinu!!!" hehehe.. það var ekkert smá hljóðið...oj!! :-D ...En allavega þá er stefnan tekin á Andrésarleikana í fyrramálið að hvetja litlu krílin og svo er skíðahelgi hjá okkur fjölskyldunni hérna á Óló þannig að ef þið viljið vera með þá eru allir velkomnir. Þemað er = Útivera og endalaust BROS :-D

Nú erum við að fara að Grilla þannig að vonandi bara Njótiði lífsins...Það ætlum við að gera :-D ..... Kv. Lísa og Rúnar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband