Leita í fréttum mbl.is

Let it snow, let it snow - LET IT SNOW!

Já það vottaði örugglega fyrir þessu dásamlega jólalagi í hugum margra Ólafsfirðinga þegar þeir stigu úr rekkju í morgun og litu út um gluggann. Það var gjörsamlega allt hvítt, sást ekki í bílinn okkar, gras né götur og gröfurnar voru mættar að skafakl. 10 í morgun. Oh hvað mér fannst þessi snjókoma kósý. Ég var næstum því búin að skella mér í snjógallann, hringja í Hilmar og biðja hann að koma út og gera virki en sökum ástands míns þessa dagana þá ákvað ég bara að leika við Rúnar í staðinnInLove Ég reyndar hringdi í stórfrænda minn Kristján Már Kristjánsson 2gja ára snilling og spurði hann hvort hann ætlaði ekki út því hann er sem sagt hræddur við snjó þessi snúlla. Hann sagðist ekki ætla út því hann myndi ekki þora og skammaðist sín sko ekkert fyrir það. Við kíktum síðan til Bróa og Helgu og þau sögðu okkur að Helga hefði náð honum í útigalla, stígvel, húfu og sólgleraugu en hann vildi ekki snerta snjóinn og stóð í útidyrahurðinni og horfði á mömmu sína á meðan hún gerði snjókallGrin hehehehe, ég bara get ekki hætt að brosa yfir þessum snillingi! 

Leikurinn í dag var hinn ágætasti og hefði ég reyndar viljað sjá á bikarnum í hendur Fjölnismanna bara út af því hvernig aðstæðum þeir voru í áður en leikurinn hófst. Án "sinna" bestu leikmanna þar sem FH-ingar voru hræddir við þá. Aumingjalegt að mínu mati, jújú fengu titilinn og 500þús kalli meira en þeir bara gátu ekki neitt og voru Fjölnismenn að sína miklu meiri baráttu sérstaklega þegar leið á leikinn. Hefði viljað að þeir næðu að halda 1-1 og unnið þetta svo á vító, djös snilld hefði það verið. En svona er boltinn og ég óska FH-ingum til hamingju og góða skemmtun í rallllinu í kveld...

Sjáumst á skautum á morgunW00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að fylgjast með þér snúlla mín. Ég bíð spennt eftir að fá stóru fréttirnar :o) þangað til gangi ykkur allt í haginn

ginga (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 11:49

2 identicon

hérna... hvað var aftur í verðlaun fyrir þann sem fattaði upp á nafninu á húsið ykkar?!?

Hjalti (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 15:35

3 identicon

Heyrðu ég er að koma á MORGUN í fjörðinn og ekkert að gerast. Þú verður greinilega að láta Rúnar leika meira við þig En annars tók ég frú óþolinmóð til þess ráðs að hlaupa upp og niður stigaganginn í blokkinni sem ég bjó - alla daga - tvisvar á dag - þegar 7 dagar voru eftir í settan daga. 10 ferðir upp og niður 5 hæðir - skiluðu barninu á hárréttum tíma

Koma svo....

Helena (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 15:51

4 identicon

sælar elskurnar í fallega snjónum, oh hvað ég væri til í að fá snjó og troðast í virkisframkvæmdir með óla sæta, annars fáum við örugglega ekki að njóta þess í ljósaborginni fyrr en eftir jól að vanda;) við sendum ykkdur fullt af kossum og knúsum og heillaóskum elsku litla fjölskyldan í Ólafsfirðinum:)

Hrafnhildur, Gulli og Ólafur Björn snúllidúlli (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 00:14

5 identicon

Takk fyrir heilaráðin, förum í þann pakka.. Hjalti minn þú færð í verðlaun að koma þessu á skilti og skrúfa það upp

Lísa (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 22:09

6 identicon

Hej dullur!

Er i skolanum og allt i einu skaust Lisa upp i hugann a mer med bumbuna sina...ertu nokkud ad eiga? Eda kannski buin? :-) Er ad drepast ur spenningi herna eftir frettum!!

Vid verdum a Akureyri um jolin litla fjolskyldan og ta heimtum vid ad fa ad hitta ykkur familiuna...get ekki bedid!

Knus og kossar og gangi ter rosalega vel elsku Lisa min tegar kemur ad tessu!!

Krammer...

Eva

Eva i Danmorku (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 09:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband