Leita í fréttum mbl.is

Hermann Hreiðarsson í Bónus

Nammi namm, ef ég hefði verið ólétt þá hefði ég misst legvatnið!!! Sjitt hvað hann er myndó, og frægur og bara eitthvað hávaxinn og hann blasti bara við mér við kassan í Bónus, amma Lísa var eitthvað að reyna að tala við mig og Rúnar, en ég heyrði ekkert hvað þau sögðu, hehe ég hreinlega vissi ekki að hann væri svona hávaxinn og hann bara stóð upp úr öllum röðunum á kössunum, dí með kjálkann alveg út í loftið..jeminn, núna man ég af hverju ég elska fótbolta!! Ullandi Djók... en lærið á mér er alveg að koma til og er ég orðin aftur aðeins jákvæðari á Austurferðina um helgina, hlakka hreinlega bara til, held meira að segja að Rúní ætli að lauma sér með. Getur ekki verið án mín þessi elska!! Var að byrja með sund-og leikjanámskeið á þriðjudaginn og þessar elskur bjarga alveg deginum manns þau eru svo yndisleg. Hér koma nokkur dæmi um það sem gefur manni glaðan dag;

-"Má maður þá ekkert anda það sem eftir er af tímanum?"

-"Ég kemst ekki í dag því ég datt á hjólinu mínu og handleggsbrotnaði á pungnum"(einn fékk stuð)

-"Eru þá augabrúnirnar á þér svona brundaðar á?"(ein að spá með tattúið og meinti brenndar!!)

Æji þau eru alveg frábær þessar snúllur. Leikir í dag og svo verður farið að veiða síli á morgun, jí-ha!! Annars bið ég bara að heilsa ykkur eins og alltaf og vona að dagurinn ykkar verði jafn frábær og minn mun verða. Kv. LiZ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband