Leita í fréttum mbl.is

Magni v.s. Völsungur kl. 19.00 í kvöld

Já endilega skellið ykkur á völlinn til að sjá þennan Magnaða æfingaleik á Hrafnagilsvelli á eftir. Er bara að reyna að dreifa huganum áður en leikurinn byrjar ég get ekki haldið í mér neinu vegna stress og ég er að segja ykkur það ég var á leiðinni Norður áðan dollurnar fengu að finna fyrir mér allstaðar á landinu. Byrjaði í höfuðborginni, svo Borganes, Hrebbinn, Brú, slapp við Blönduós en Varmahlíð náði mér og svo home sweet home og ég er að segja ykkur það að þetta hlýtur að fara að snúast í hina áttinu því ég er alveg svona farin að kúgast núna úr stressi!! Þvílík vitleysa hvernig maður er, ég meina kommon þetta er nú bara æfingaleikur!!...sjitt

Já eftir myndatökuna með útskriftardrengnum í gærkveldi þá brunaði mín í Borg óttans og gist hjá Írisi því hann Fjalar minn sveik mig, reyndar búin að róa mig niður í dag þannig að honum er fyrirgefið, en málið var að versla klifurskó og kalk og missa sig aðeins í IKEA. En eins og þið vitið þá er ég svo hrikalega skipulögð að ég hafði tíma til að versla mér líka í Kringlunni og Smáralind áður en klukkan slóg hádegi og búðirnar opnuðu klukkan 10, geri aðrir betur. Já og nú er ég semsagt komin og varð bara aðeins að upplýsa ykkur um þessa eftirminnilegu ferð mína Norður. Besta dollan var í Borganesi, bara svonna upp á næsta ferðalag!! ;-D

Sjáumst á vellinum kæru vinir.....ciao


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HÆ sæta er sko ekki búin að komast hér í marga daga... tölvan bara vildi ekki opna síðuna þína :( en hvað er þetta með einhverja ferð sem verðið hækkar svona á... hvert ertu að fara? Gott að allt er gott hjá ykkur þarna í Akureyrarsælunni - það er nefnilega allt svo ljúft hér líka :) kossar til Rúnars XXX við öll ÞSS

Þórey (IP-tala skráð) 16.5.2006 kl. 22:20

2 identicon

Jæja tjella...það þýðir ekki að tuða í mér.. búin að kvitta í dag ;)
Takk annars fyrir leikinn í gær og það er nú gott að vita að mar eigi frekar að stoppa í Borgarnesi en e-r staðar annarstaðar ! ;)

Knús músin mín

Birna Bald (IP-tala skráð) 17.5.2006 kl. 11:28

3 identicon

hæhæ...þú hefur ekkert minnst á Alicante ;) Ertu ekki örugglega buin að panta sæta?

Jóka (IP-tala skráð) 17.5.2006 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband