Þriðjudagur, 30. september 2008
400 Kcal?!!!
Ja-hérna-hér...ég var að lesa grein í morgun um hana Jónínu Ben og hennar detox kúr í Póllandi og þar kemur fram að prógrammið hjá henni felst aðallega í því að fólk fær ekki að borða meira en 400 hitaeiningar á dag. Á dag..... Á DAG!!! Hvaða bull er þetta, ég er ekki hissa á að manneskjan hafi lést um 17 kg á viku, okey kannski tveimur!!! Við skulum sjá...... Matseðillinn myndi þá líta út einhvern veginn svona ef ég dreifi bara hollustu og óhollustu á milli daga svona til að halda manni "sane":
Mánudagur: Stór kálhaus, appelsína og 2 tómatar
Þriðjudagur:Soðinn fiskur með gúrku, Rófur í eftirmat
Miðvikudagur: Einn Bjór og 2-3 hnetur með af barborðinu
Fimmtudagur: Sellerí, lítil skyr dós, Herbashake
Föstudagur: Kjúlli með sveppum og 1 msk af hrísgrjónum, kannski smá soyja sósa, radísa í eftirmat
Laugardagur: Mars-stykki
Sunnudagur: Tær súpa með grænmeti útí og gulrót í eftirmat
Ég hugsa að ég myndi bara taka Laugardagsmatseðilinn alla daga og choppa stykkið niður í morgunmat, morgunkaffi, hádegismat, kaffi, kvöldmat og kvöldkaffi það eru 6stk og ég hugsa að ég myndi skera það þvert yfir svo það myndi lúkka stærra!!! En ég segi bara...Guð veri með þessu fólki.
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Athugasemdir
WHAT?? hvaða rugl er að borða 400 kal á dag!!
Ef ég myndi borða 400 kal á dag hefði ég ekki orku í neitt annað en að borða þessar fáu kaloríur. Þau þurfa kannski ekkert meira þarna úti í póllandi með stólpípuna í *gatinu, nee maður spyr sig;)
Sunna Eir (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 11:50
Shitturinn - titturinn! Vona að hótelið sé flott því ekki er verið að borga fyrir matinn!!!!!!!!!
Bowwow (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 09:56
Haha.. mér finnst þetta nú bara fyndið. Verði þeim að góðu segi ég nú bara.
Þetta hlýtur að naga geðheilsu fólks.. :þ
Kamilla Mjöll (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 12:53
Mmmmm, en girnilegur matseðil
Gullý (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 18:32
Við búum allavega í götu með réttu nafni!
En svona skrif létta manni nú bara lundina í þjóðfélaginu í dag, takk húmoristar og áfram detox, NOT.
Helgi magri (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 20:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.