Þriðjudagur, 17. júní 2008
Hæ hó og jibbý jey og jibbý jey....við erum loksins búin að versla tjaldvagn :-D
Ó já og búin að skella okkur í fyrstu útileguna. Keyptum gamlan Camp-let vagn sem er reyndar í topp-formi, enda komin af góðu og fallegu fólki og farið með hann eftir því! Hérna kemur djásnið okkar og smá sýnishorn af geggjuðum stað , geggjuðu veðri og geggjaðri tilveru. Hólar í Hjaltadal, jeyj...
Við eigum vagninn til vinstri og svo skelltum við Jónína, Tinna og Mamma okkur í kvöldgöngu í þessu yndislega veðri og kíktum á staðinn þar sem Jón Arason var hálshöggvin árið 1550 og ég skal veðja að:
"Meira en helmingur Íslendinga hefur aldrei komið þangað! Hvað segið þið um það borgarbörnin mín góð?
Yndislegt líf og ég mæli með að allir fari í útilegu aðeins til að finna sjálfan sig, og það langt í burtu frá sinni venjulegu rútínu s.s. vinnu, vinum, íþróttum, sjónvarpi, tölvum, símum o.s.frv. og ég er líka viss um það að það geta það ekki margir þ.e. sleppt öllu þessu sem ég var að telja upp, án þess að fríka út. En við ætlum aftur næstu helgi þannig að ef ykkur langar, en komið ykkur ekki af stað...þá er ykkur velkomið að koma til okkar Annars bíðum við bara spennt eftir þriðja ísbirninum og þá sérstaklega hvað verður gert við þann kauða.
Kv. L
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Athugasemdir
Takk æðislega fyrir að vera svona duglega að setja inn myndir og fréttir. Það er alltaf svo gaman að koma og skoða hjá þér og geta fylgst með :) Finnst þú svo dugleg að lifa lífinu....kannt svo vel að njóta lífsins. Verð að fara að taka þig til fyrirmyndar. Náttúrbarnið mitt ;)
Heyrumst,
Berglind borgarbarn en berst á móti eins og hersöfðingi ;)
Berglind (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 09:18
hæ hæ fyndið vorum einmitt að versla okkur líka tjaldvagn :) fáum hann á fimmtudaginn og er stefnan tekin á ferðalag í allt sumar geggjað :)
kveðja á ykkur öll
Lóa (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 09:38
Við erum nýbúin að kaupa okkur tjaldvagn og ætlum að skella okkur fljótlega að prufa gripinn Mér finnst svo gaman í útilegum, get ekki beðið eftir að dröslast af stað með strákana mína.
Kv, Gullý.
Gullý (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 20:54
Blessuð sæta :) Gott að sjá að lífið leikur við þig og þína :) Ég er bara að furða mig á því að þú hafir komist í gott veður... Ég er búin að vera í kuldagallanum frá því síðasta sumar! Spilaði meðal annars leik í fyrradag í 3 gráðum á Norðfirði ;)
Hafðu það annars gott og farðu vel með þig :)
Jóna Benný (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 01:34
Jón Arason var hálshöggvinn í Skálholti 1550 en hann var biskup á Hólum ;-)
Húsi (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 09:54
Nú jæja, þá hefur "gædinn" verið eitthvað þunnur þegar við hittum hann
Eigandinn (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 12:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.