Þriðjudagur, 10. júní 2008
Jæja loksins búið að klára málið
Greiði bætur vegna banaslyss, fimmtudagur 5. júní 2008
Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu, að foreldrar tvítugs karlmanns, sem beið bana í umferðarslysi árið 2001, eigi rétt á 2 milljóna króna bótum hvort um sig. Karlmaður, sem olli slysinu, var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi að sýna af sér saknæmt gáleysi. Hann er nú látinn en dóttir hans, sem tókst á hendur ábyrgð á skuldum dánarbúsins, var í dag dæmd, ásamt vátryggingafélagi mannsins, til að greiða bæturnar
Bílslysið varð á gatnamótum Drottningarbrautar og Þórunnarstrætis á Akureyri en maðurinn, sem olli slysinu, beygði bíl sínum í veg fyrir bílinn, sem ungi maðurinn ók. Sá sem slysinu olli og var 72 ára þegar þetta gerðist, játaði sök í refsimáli, sem höfðað var gegn honum og sagði að orsökin hefði verið augnabliks einbeitingarleysi af sinni hálfu.
Héraðsdómur Norðurlands eystra sýknaði dóttur mannsins af bótakröfunni en Hæstiréttur segir, að maðurinn teljist hafa gerst sekur um alvarlegt brot á umferðarreglum og verði ástæður slyssins eingöngu raktar til stórfellds gáleysis hans í skilningi skaðabótalaga. Því fellst rétturinn á kröfur foreldranna um bætur. Einn dómari í Hæstarétti, Gunnlaugur Claessen, skilaði séráliti og vildi sýkna dóttur mannsins og vátryggingafélagið af bótakröfunni.
FARIÐ VARLEGA Í UMFERÐINNI KÆRU VINIR
//Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Athugasemdir
Knús til þín elskan
Una (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 13:07
Einmitt... "augnabliks einbeitingarleysi" getur haft afdrifaríkar afleiðingar
Finnst þetta mjög "góður" dómur ef hægt er að segja það... þó ekki sé nema til að undirstrika það hve lítið þarf út af að bregða til að eitthvað hræðilegt gerist. Það eru ekki bara drukknir einstaklingar sem valda skaða í umferðinni, líka þeir sem eru einfaldlega ekki með augun opin. Þetta minnir mig allavegana á að keyra varlega. Hugsa hlýjar hugsanir til töffara aldarinnar og þeirra sem honum tengdust....
Knús og aftur knús litla mín
Berglind Gestsdóttir (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.