Miðvikudagur, 1. nóvember 2006
Nú er ég klædd og komin á ról :-D
Já ég veit að þið eruð komin með leið á þyrlunni, en hún flýgur samt!! :-) Fullt að frétta hérna megin er hreinlega að hugsa um að hafa þenna fyrsta pistil nóvembermánaðar í svona sentos:
-Body Pumpið er að vekja gríðarlega lukku í firðinum og alltaf fullt í tímum. Hvet ykkur öll til að mæta í þetta brilliant lyftingarprógramm í hóp, mikið stuð og þarna er sko tekið á því. Sjáumst kl. 18 today
-Fékk streftakokka(líka alveg rétt skrifað hjá mér!!) í háls og eyrnavesen þannig að ég var frá kennslu og biðst afsökunar hjá reiðum líkamsræktarfríkum :-D en síðasti dagurinn í dag á lyfjum þannig að ég vona að þetta hafi verið síðasti punkturinn yfir i-ið í veikindum ársins 2006...plís!!
-Fórum að heimsækja borg óttans og kláruðum hreinlega að versla jólagjafir...úlla-la, tókum þvílíkt á því í Smáralind, IKEA, Kringlunni, Skeifunni, leikhúsastemmarinn var yfirvofandi og skelltum við okkur á Footlose með Jónínu og John, fórum á Mýrina og í eftirmat var tekið á því með MacDonalds. Fjalli félagi og Fríða buðu okkur í mat sem var illa góður og svo fékk ég gæjann minn til að smakka SUSHI og ummmmmm og svipurinn á honum á meðan hann tugði það stendur upp úr ferðinni :-D
-Kíktum líka til Johnny og Hildar Völu með krúttlegu kúluna sína út í loftið og við fengum okkur að sjálfsögðu Hagamelsís, gamla sko!! Brynja Hvað?? Ég fékk áritaðan disk og allt Ó.M.G :-D
-Á heimleiðinni droppuðum við í sveitinni hjá ömmu sætu á Brandarskarði og hlóg ég hreinlega í tvo tíma því hún er svo hrikalega fyndin og væri án efa búin að fá verðlaun ef hún væri leikkona. Keyrðum yfir Þverárfjall og komum við hjá Gullanum okkar en hann var ekki við þannig að við brunuðum bara hjemme på þar sem beið okkar dýrindis jólamatur hjá bróa og Helgu. Um kvöldið fórum við Svanborg svo á Ak að dansa og keyrðum svo heim, snilldin ein.
-Nú er skólinn bara byrjaður aftur og Hallbera mín átti afmæli í gær, takk fyrir spjallið sæta, það var æði. Aftur orðið klikkað að gera, styttist í annarskil þannig að það er allt að gerast. Keypti mér kókómjólk í gær og það stóð á henni GLEÐILEG JÓL....common!!
-Er ekki með netið heima þannig að ég verð að reyna að blogga í vinnunni....lifið heil og plís ekki byrja að skreyta strax, það er bara 1. nóv ennþá......hóhóhó....Lísan kveður over and out
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Athugasemdir
Er að reyna að gera það þannig að það sé hægt að kommenta bara beint...let see litle ones
XXX Lísa
Lísebet Hauksdóttir, 1.11.2006 kl. 09:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.