Leita í fréttum mbl.is

Ein ég sit og sauma!!!

Eða ekki....hef ekki alveg þolinmæðina í það enda er ég vel undirbúin að skilduverkefnum Grunnskólans hérna fyrir nokkrum árum þegar ég þurfti að sauma, barnanáttföt, skírnakjól, hekla húfu og hosur og svo saumaði ég líka vöggusett með upphafsstöfunum mínum og fiðrildum og blómum í kring og vá hvað ég er stolt af því í dag að ég hafi gert þetta. Takk amma og mamma fyrir að reka mig áfram í þeim efnumHeart

Rúnar fór snemma í morgun að taka þátt í fjallabjörgun að leita af Þjóðverjunum tveimur og endaði það ekkert ofsalega vel þar sem hann hrasaði við sprungu og fór úr axlarlið. Hann var fluttur með þyrlunni á búðasvæðið þar sem honum var síðar kippt í liðinn þannig að hetjan mín er á batavegi. Hann kemur svo í fyrramálið með flugi þannig að það verður rosalegur léttir að fá hann heim og hjúkra þeim sæta.

Skólinn er svo bara að byrja og mér hrakar á hverjum degi, með bjúg, þungan hjartslátt, grindagliðnun og svima, ekki alveg fyrir mig að skella á svona vegg en svona er þetta bara þegar síðustu metrarnir eru eftir og finnst mér mjög líklegt að ég klári bara næstu viku í vinnu og fari svo að undirbúa mig undir maraþonnið mikla í byrjun október. Hjalti bró er mættur á svæðið og voru þeir að keppa við ÍBV sem endaði í tapi, en þetta blessaða tímabil fer nú að klárast og held ég að allir verði bara fegnir. En ég er hins vegar farin að kúra í vídeó í kósý myrkri og með kertaljós og nýt þess að hlusta á þessa hellirigningu undir súðinni hérna í ÓlafsveginumBlush


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Farðu vel með þig Lísa og mundu að það er gott að geta hvílt sig yfir daginn... fætur upp í loft og slakaðu á... Heyri í þér fyrr en seinna sæta - XXX frá vestfirsku ölpunum

Þórey og litli garpur (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 14:56

2 identicon

Hæ Lísa mín!

Nú er farið að styttast í þetta hjá þér!  Mundu bara að hvíla þig vel og láta Rúnar dekra við þig þessar síðustu vikur!

Hvernig væri nú að fá eins og eina bumbumynd?!?!

Kveðja,  Eva Páls og co

Eva (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 23:06

3 identicon

HAHAHA...gat nú verið að það hafi verið Rúnar sem meiddi sig!!! Ótrúlega óheppinn þessi elzka ;) En ég minni þig á að HVÍLA þig fyrr en seinna !!!!! Annars verður þú bara lögð inn...og það er sko ekkert gaman !

Knús frá öllum í Skessunni ;o)

Birna (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 10:26

4 identicon

ÆJ, var þetta Rúnar sem meiddist  Vona að hann hafi það gott og þú líka skvís.

Ótrúlegt hvað líkaminn getur farið að stríða manni og einsog þú segir þá gengur maður bara á einhvern vegg en þá er um að gera að reyna að slaka á og láta dekra við sig  Ég hætti að vinna þegar ég labbaði á þennan vegg og það var þvílíkur munur, að geta hvílt sig og slakað á.

Segi einsog Eva, hvernig væri að skella inn einni  bumbumynd eða svo???

Bestu kveðjur, Gullý og bumbugaurinn sem fer alveg að mæta á svæðið

Gullý (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband