Leita í fréttum mbl.is

Bandý, blíða, gæsun, bústaður og jammerí

Jæja jæja þá er helgin loks liðin og var hún í alla staði bara algjör snilld. Veðrið brosti við okkur og eru allir orðnir frekar sólbrúnir hér á bæ. Spenningurinn var yfirvofandi fyrir undirbúning bandýmótsins og við stelpurnar í "unformazing" skelltum saman einu liði og tókum Svanborgu og gæsuðum hana í leiðinni, mikið gaman mikið grín!! Rændum henni af Sparó-liðinu kl. 10 um morguninn og skelltum henni í gæsabúning því við vorum veiðimenn og hún því snilldarbráð! Leigðum bústað með öllu tilheyrandi og skelltum okkur svo á bandýmótið sem hófst með skrúðgöngu um bæinn. Alls 18 lið voru skráð þannig að það var allsstaðar stappaðGrin Við rústuðum 1. leiknum 4-0 og seinni leiknum töpuðum við 1-2 og ég missti aðeins skapið en það reddaðist um kvöldið því ég fékk verðlaunapening fyrir að vera "tapsárasti leikamðurinn"..vúps!!! Eftir mótið fórum við í pottinn í sólarmollu við vatnið, Naree eldaði tælenskan mat fyrir okkur og svo græjuðum við okkur upp fyrir kvöldið. Tjarnarborg var troðfull af fólki í mis-skemmtilegu ástandi og hlutirnir voru mjög dramatískir eftir að okkar atriði leið dagsins ljós, en við skulum bara orða það þannig að allt endaði vel og við jömmuðum langt fram á nótt með gæsina okkar góðuHeart

Sunnudagurinn fór aðallega í það að hlæja af gærdeginum og sötra kaffi og borða köku sem ég skellti svonna í... Á meðan við vorum í því þá tók Rúní sig til og bjó til heilan kartöflugarð hjá okkur sem lítur bara vel út, sveitasælan alveg að fara með manninn!Wink Svo er það bara frí aftur á morgun þar sem maí er að ganga í garð og það þýðir bara eitt.............ÞAÐ ERU TUTTUGU OG TVEIR DAGAR Í AFMÆLIÐ MITTWizard......... víííííí


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband