Leita í fréttum mbl.is

"does that make me crazy"...

það kemur ekkert annað í huga mér en þetta frábæra danslag þegar ég hugsa til þess hvað ég er þreytt þessa dagana, ég bara skil þetta ekki með lúrinn eftir hádegi og hvað maður er farin snemma að sofa í þessu ástandi.. ég hélt allavega ekki svona lengi, maður er nú komin á 16. viku!! En vonandi fer þetta að lagast.

Fórum í leikhús á föstudaginn á "Lífið-notkunarreglur" og það var bara hrikalega gaman og það rifjast alltaf upp fyrir manni hvað Þorvaldur Þorsteinsson frændi minn er sérstakur. Á laugardaginn tók svo við hrikalega langur dagur á kennaraþingi á Ak sem var allt í lagi nema það að um 4 leytið þá var það búið og við reyndum að fara í ræktina, á glerártorg, í hagkaup og alls konar dót og vá hvað mér leiddist Akureyri, það var allt lokað og ég sé hreinlega ekki eftir neinu þarna á Aklureyri nema jú ég sakna þess að geta ekki farið á skokkið í hindum yndisfagra Kjarnaskógi og hana nú. Ólafsfjörður rokkar!Cool

Byrjaði með Útivistarhóp í gær og var það algjör snilld og gott fyrir alla að fara aðeins út með ræktina. Sjáumst galvösk í dag í gymminu elskurnar.....Kv. Lísa


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Úff, ekki minnast á þessa þreytu  Ég er að verða komin 21 viku og er alltaf þreytt, finnst ég þó vera aðeins að lagast því ég er farin að vaka lengur en til tíu á kvöldin   

Vona að þér líði annars rosalega vel.

Kær óléttukveðja, Gullý.

Gullý (IP-tala skráð) 17.4.2007 kl. 14:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband