Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Íþróttir

Verð að deila þessum svona í skammdeginu :-D

 Einu sinni var gömul kona að ganga niður götu með tvo troðfulla ruslapoka. Lögreglumaður stóð þarna rétt hjá og tók eftir því að það var gat á öðrum pokanum og 5000kr seðlar flugu úr pokanum annað slagið. Eitthvað fannst honum þetta dularfullt og gekk upp að konunni.

    "Góðan daginn væna mín" sagði hann. "Hefur þú tekið eftir því að það eru 5000kr seðlar fjúkandi úr pokanum þínum?" Konan stoppar og lítur bak við sig og sér seðlana á víð og dreif um götuna. "Æ, þakka þér fyrir væni minn, ég ætti nú að drífa mig í að taka þá upp".

Þegar konan ætlar að leggja af stað að týna upp seðlana, stöðvar lögreglumaðurinn hana. "Engan asa væna mín, hvernig stendur eiginlega á því að þú ert með fullann ruslapoka af 5000 köllum?, Varstu að ræna banka?" Gamla konan brosti. "Nei það gerði ég nú ekki, en það vill svo til að bak við garðinn minn er stór fótboltavöllur og alltaf þegar mikilvæg mót eru í gangi, þá koma oft ungir menn og míga í blómabeðin hjá mér, svo ég tók upp á því að standa þarna með garðklippurnar og segja: "5000kall eða ég klippi hann af"..."Ja-há, þetta er áhugaverð hugmynd", sagði lögregluþjónninn hugsi. "En hvað ertu þá með í hinum pokanum gamla mín?"

"Það eru ekki allir sem borga..."LoL

 

Njótið dagsins kæru vinirWink


Hvað varð um gömlu teiknimyndirnar?

Já þar sem ég er núna í fæðingarorlofi með mína yndislegu prinsessu er kúrt svolítið fram eftir morgni og einnig kveikt á tv seinni partinn þegar pabbinn kemur heim. En það sem ég skil ekki og mun aldrei skilja af hverju er verið að sýna þessar teiknimyndir sem eru sýndar núna. Þetta snýst allt um einhverjar ofurhetjur sem drepa mann og annan og ef ekki þá eru það skrímsli sem breytast í eitthvað annað til að drepa einhvern annan, ég bara skil þetta ekki og ég skil ekki heldur hver velur þetta.

Hvað varð um teiknimyndirnar sem maður vaknaði spenntur til að horfa á um helgar eins og "Bangsi bestaskinn, nebbarnir, í Óskaskógi, Kærleiksbirnirnir, Einu sinni var, Kalli og Kýklóparnir, Foli minn litli og fleira og fleira" sem senda börnum actually umhyggju og kærleik í stað ofbeldis! Ekki það að foreldrar geta alveg valið hvað börnin þeirra horfa á, en þetta er í almennu sjónvarpi og ég meina, ÞAÐ ER EKKI EINS OG TEIKNIMYNDIR VERÐI ÚRELLTAR!!!! Ég heimta að þeir hjá sjónvarpinu og stöð 2 fari að sýna þessar gömlu góðu aftur því það virðist koma fram í annarri hverri umræðu í þjóðfélaginu..."hvað verður um þessa kynslóð, ofbeldishneigð, hatur, eiturlyf......og eitt leiðir af öðru" Ég held að fólk ætti að byrja á því að leita aðeins dýpra og byrja á sjónvarpsefninu sem núverandi "kynslóð" er að horfa á!

En takk fyrir Janúar, næsta markmið er að klára Febrúar með bros á vör.  Good Day


Ætli sér stórt undir honum?! Jæks

450449AHollendingurinn Wim Hof sem kallar sig „tantra-meistarann“ bætti eigið heimsmet þegar hann stóð í glerbúri þakinn ís í 72 mínútur. Hann sló metið á götu í New York í gær.

Ég var samt mjög fegin að sjá að þetta var ekki vinur minn hann Mái sem var þarna í kerinu og er líka glöð yfir því að þau Hela eru að flytja frá Hollendingunum og alla leið til Washingtin D.C. Við munum heimsækja ykkur þangað mín kæru.

Ég er farin á göngu, ekki nakin, ekki með hárband og ekki veik á geði, heldur bara í hlýjum snjógalla með virðingu fyrir Vetri Konungi. Annars bið ég fyrir kveðju á það sem eftir er undir  þessum peija, ja ef það er eitthvað eftir það er að segja. Over and OUT. Lísebet Hauksdóttir 


Survivor!!! Hverjum getur þú treyst?

Já það er spurning???

post-3036-1201107763_thumb

 


Sílíkonbrjóst rotna ekki, þau springa!

Já mikið rétt, ég las þessa skemmtilegu grein í "24stundir" í morgun við kaffibollann minn og kertaljósið. Þar kom fram þessi stórglæsilega mynd af Pamelu Anderson og þar fyrir neðan stóð að menn þyrftu að gjöra svo vel að láta vita um hvort þeir/þær væru með sílíkon ef brenna ætti líkið hjá viðkomandi því þegar það gleymist að segja frá því þá springur sílíkonið og gjöreyðileggur líkbrennsluofninn og eru útfarastjórar ekki sáttir við þessa þróun mannsins. Damn ég sem var í sílíkon um síðustu helgi í Reykjavík! En ef ég finn jákvæðu hliðina á þessu þá getur hann Rúnar minn alltaf fengið að eiga brjóstin mín, ef ég dey á undan, þá skal ég sjá til þess að skemma enga ofna og láta fjarlægja þau í þínar hendur ástin mínW00t


Hvað er málið með "Brjálaða veðrið" í Reykjavík og nágrenni...Jesús, þetta fólk kann náttúrulega bara ekki á svona yndislegheit. Þetta er bara eins og hver annar dagur á góðum vetri í Ólafsfirði en það er gott ef þeim finnst þetta fréttnæmt. Það væri ljótt ef það þyrfti að sýna frá hverjum einasta mokstri af götunum hér, ég held að fólkið ætti að sjá ruðninginn við hliðina á húsinu mínu áður en það fer að segja að það sé svo mikill snjór að elstu menn muni ekki eftir öðru eins...ég á hreinlega ekki til orð, komið bara í heimsókn því ég mun halda námskeið í snjómokstri, virkisgerð, snjókasti, eltifönn, snjóhúsabyggingu, rennsli og stökki. Skráning í síma 466-2737


Ledgerinn er dáinn :-/

Díses hvað ég fékk mikið sjokk í gærkveldi þegar ég var að flakka á skjánnum og lenti á Sky News og sá þá fyrisögnina um að sætasti sæti hefði fundist látinn á heimili sínu kl. 20:30 vegna lyfja-overdose! Ég bara trúi þessu ekki, er meira að segja nýbúin að horfa á "10 things I hate about you" myndina okkar Hallberu og Þóreyar og dást af þessum riddara. Ég hringdi náttúrulega í Hallberu og sagði "Veistu hver er dáinn?" kannski ekki besta setning sem maður byrjar á í síma, en ég bara varð....hún var eiginlega hálf fegin þegar nafnið var ekki af neinum nákomnum eða einhverjum sem við þekktum, en engu að síður í mínus með mér yfir þessu sæta gæjaCrying En þar sem ég get ekki sent aðstandendum hans blóm þá hef ég ákveðið að tileinka næstu kvöldum Heath Ledger og horfa á myndirnar hans þar sem ég á þær allar  og að sjálfsögðu  mun ég byrja á "10 things...", því næst "Knights Tale" og svo framvegis, þannig að þeim sem langar að vera memm.....mætið bara og já...komið með nammi eða ís eða köku óg rjómaW00t

Já það gengur sem sagt frekar erfiðlega að koma sér úr jólaátinu en okkur er alveg sama þar sem Karen Helga er farin að spítta í og drekka meira af mömmu sinni og það er mín brennsla! Það eiga tveir snillingar stórafmæli í dag og vil ég óska þeim innilega til lukku með það. Í fyrsta lagi er það hún yndislega amma mín og nafna Lísa. Hún er 70 ára þessi elska og talaði ég við hana í heilar 50mín áðan og alltaf finnst mér hún jafn fyndinWizard Hinn snillingurinn er hann Óli á Bjargi og er hann 50 ára í dag sem bauð okkur í PARTEI á laugardaginn kl. 20 en ég gleymdi að spyrja hvort maður mætti koma með barn???!

Karen Helga er búin að lifa í 104 daga og ég fattaði það um leið og þessi blessaði Borgarstjórn hrundi aftur því hún fæddist á þeim degi þegar hún hrundi síðast og meira að segja á sama tíma! En hún er mun hraustari en þetta lið í borginni og stendur sig í gegnum allt, litla hetjan mínHeart Ætlum að reyna að byrja að blogga aftur hér en það er svona þegar prinsessan hefur hug manns allann að maður uppfærir bara hennar síðu, endilega kíkkið á hana....www.barnanet.is/lif 

 

Gísli til hamingju með sveindóminn 1995Wizard

Kiddi góða ferð til Orlando, viltu kaupa "Salt water taffy" handa mér?Whistling


Það er ALLT leyfilegt um jólin

Orð í heilsuræktarbransanum sem ég er gjörsamlega komin með nóg af, allavega í desembermánuðinumGrin

-Lífrænt ræktað

-Gluteinóþol

-Fitandi

-Óhollt

-Hreinsun

-Ekkert af þessu virkar hvorteðer þannig að tölum bara saman í janúar! þannig að ég læt hér fylgja með KALORÍUREGLUR FYRIR JÓLIN. Gott að styðjast við, áður en maður fer að hugsa hvað maður setur ofan í sig.

-Maturinn sem þú borðar þegar enginn sér til hefur engar kaloríur
-Þegar þú borðar með öðrum eru einungis kaloríur í matnum sem þú borðar umfram þau.
-Matur sem er neytt af læknisfræðilegum ástæðum (t.d. jólaglögg, heitt súkkulaði, rauðvín o.s.frv.) inniheldur aldrei kaloríur

-Því meira sem þú fitar þá sem þú umgengst daglega því grennri sýnist þú
-Matur (t.d. poppkorn, kartöfluflögur,hnetur, gos, súkkulaði og brjóstsykur) sem er borðaður í kvikmyndahúsi eða þegar horft er á myndband er  kaloríulaus vegna þess að hann er hluti af skemmtuninni.
-Kökusneiðar og smákökur innihalda ekki kaloríur þar sem þær molna úr þegar bitið er í þær.
-Allt sem er sleikt af sleikjum, sleifum, og innan úr skálum eða sem ratar upp í þig á meðan þú eldar matinn inniheldur ekki kaloríur vegna þess að þetta er liður í matseldinni.
-Matur sem hefur samskonar lit hefur sama kaloríufjölda (t.d. tómatar = jarðaberjasulta,  næpur = hvítt súkkulaði)
-Matur sem er frosinn inniheldur ekki kaloríur því kaloríur eru hitaeiningar

Ég mæli með því að þetta HENGIST Á ÍSSKÁPINN
GLEÐILEG JÓL
 

Sit hérna og narta í yndislegt smákökudeig sem ég var að laga á meðan ég skrifa þessa yndislegu grein, já það er sko gaman að vera til þessa dagana. Eða bara alltaf-ég er svo hamingjusöm lítil stelpaInLove

Lísa í Undralandi kveður.. 

 


Kósíheit par exelance

Snjórinn er farinn að láta sjá sig í firðinum og vonandi festist hann í þetta skipti, þá verður svo jólalegt og flott hérna í bænum í des að það er engu lagi líkt. Fólk er strax farið að hengja upp seríur og stefnir allt í það hérna í bænum að það verði búið að skreyta allsstaðar fyrir skírnina enda ekkert smá fagnaðarerindiHalo

Flott hjá Toy´s R us að senda út bæklinga um allt land af þessu frábæra dóti sem þau eru með. Gerði heiðarlega tilraun til að hringja og panta pæjudót fyrir snúlluna mína en neinei, þá sagði gaurinn í símanum "við sendum ekki út á land"!!! Hvaða fílósófía er það? Þvílíkir dúfussar og gefa mér enn meiri ástæðu til að bæta einni haturstilfinningu í viðbót í garð ReykjavíkurShocking en við þurfum sko ekkert á þeim að halda, við smíðum bara leikföngin okkar fyrir jólinGrin

Fruliche Weinachten meine Damen und HerrenHeart


Hvað er málið?

Laugardagslögin:

-Við vitum að þessi svarti Smith þarna syngur vel en, er hann það desperat að fara þara út í Eurovision að hann syngi í hverjum einasta þætti? það eru fullt af flottum söngvurum þarna úti og þetta er mjög líklega bara að vinna gegn honum en hitt, skil þetta ekki alveg!

-Það eru líka til fleiri lagahöfundar en Barði, Svala, Maggi Eiríks og Magnús Þór 

Dagskráin á norðurlandi:

-Vá hvað fasteignir skemma orðið hina skemmtilegu stund á miðvikudögum þegar dagskráin er borin í hús, maður kemur sér vel fyrir í sófanum og ætlar að chilla og skoða en nei, þá flettir maður og flettir og flettir og blaðsíðurnar eru orðnar 32 talsins þar sem bara er verið að auglýsa fasteignir...

-common, gefið út sér fasteignablað! 


Brósi til ÍA?

Ja maður spyr sig...drengurinn er að æfa með þeim þessa dagana og maður hefur ekki einu sinni hugmynd um það, svo les ég bara á fótbolti.net að kappinn tvítugi sé til skoðunar hjá ÍA, flott hjá þér strákur, heyri í þér í vikunniInLove

Annars hefur maður nú ekki mikið verið að fylgjast með umheiminum þar sem heimurinn minn snýst um litlu prinsessuna og á hún hug minn allann og ekki skammast ég mín fyrir það, bara gaman sko. Grillveisla um helgina hjá Willa og Jóku þar sem Willinn var að útskrifast í fyrrasumar og á að fagna því núna því nú er loksins tími, þannig að við ætlum að skella okkur í Túngötugrill á föstudaginn, líf og fjör

-Laugardagslögin er öll leiðinleg og líst mér ekkert á að taka einu sinni þátt í Eurovision

-Hvað var málið með að Gilzenegger var ekki líka ber að ofan...sterabólur??

-maður spyr sig!! 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband