Færsluflokkur: Íþróttir
Föstudagur, 4. september 2009
Bissý-dey
Ja-hérna-hér!!! Mikið svakalega er ég búin að vera dugleg í dag, á bara ekki orð. Er búin að mála allar fjalirnar sem fara í skjólvegginn og þá er bara að taka fram skrúfvélina í fyrramálið. Ég er orðin frekar spennt að klára þetta.
Rúnar kom heim í hádeginu og gladdi mig mikið. Hann var í SLÖKKVILIÐSBÚNING og með hjálm...já takk það er velkomið á minn disk!!!! En neinei, hann var að fara að bruna á Sigló á námskeið og kemur ekki heim fyrr en who knows when þannig að ég gat nú notið þessa búnings eitthvað lítið, það verður spurning hvað heimkoman á sunnudaginn ber í skauti sér
Ætlum í bústaðinn á morgun líka, í smá vinnutörn þar. Það þarf að bera á bústaðinn og pallinn og svona stússerí og svo er það bara pottur og kósíheit um kvöldið, kannski við gistum bara öll saman aftur í Tónabæ því Rúnar verður á þessu námskeiði alla helgina þannig að við munum sjá eitthvað lítið af kauða. Hafið það gott um helgina elskurnar og munið að "Hver er sinnar gæfusmiður" ;-)
XXX Lísa
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 1. september 2009
Lísebet Hauksdóttir
er í augnablikinu
-að missa mig yfir "Little Britain"..þvílík helvítis snilldarvitleysa, ég elska þá
-að njóta fæðingarorlofsins aðeins of mikið á meðan allir eru að vinna
-að læra utan af nýtt prógram af Body Pumpi og starta námskeiði á mánudaginn
-að vona að íbúðin mín sé að seljast
-að hugsa til JónsEggerts ;-)
-að fara að kela
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 29. ágúst 2009
Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
Já sæll hvað ég var búin að gleyma þessari síðu okkar. Svona er þetta þegar það kemur eitthvað betra og flottara eins og feisið! Verst að maður verður ekkert betri og flottari sjálfur, en það er verið að vinna í því hérna í Undralandinu
Við ætlum að skella okkur í afmæli á morgun hjá Svövu og Kjartani þannig að við erum að hvíla okkur núna með gúrkusneiðar á augnlokunum, tásurnar í fótabaði og svo er það maski og vellyktandi í eftirmatinn. Flakkarinn okkar er dead þannig að við verðum að finna okkur eitthvað skemmtilegt að gera í staðinn fyrir sjónvarpsgláp og þetta er bara stuð
Eins og flestir vita þá er búið að bætast í familíuna og eigum við orðið einn lítinn Hauk sem er langflottastur og yndislegur í alla staði. Hann er ekki alveg eins líkur pabba sínum og Karen Helga var þannig að kannski á maður smá séns í einhvern svip frá sér!!! Hoping, allavega... þá allt í einu mundi ég eftir þessari síðu og held bara að ég haldi áfram að rita einverjar stórmerkilegar fréttir hérna inn svona í fæðingarorlofinu hvort sem einhver man eftir þessu bloggi eða ekki. Alltílæbless....XXX
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 31. desember 2008
GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
ÉG HLAKKA SVO TIL AÐ SPRENGJA UPP ALLAR TILFINNINGAR ÁRSINS 2008. EKKI ÞAÐ AÐ ÁRIÐ ER BÚIÐ AÐ VERA FRÁBÆRT Í ALLA STAÐI OG VIÐ EKKI BÚIN AÐ FARA ILLA ÚT ÚR ÞVÍ ÞANNIG AÐ VIÐ ERUM MJÖG LIGEGLAÐ Í DAG. ÞAÐ ER BARA SVO GOTT AÐ ENDA ÁR EINHVERN VEGINN. FARA HRESS INN Í NÝTT ÁR, MEÐ NÝ MARKMIÐ OG NÝJA HUGSUN. HJÁ OKKUR VERÐUR AÐALMÁLIÐ Á ÞVÍ NÆSTA AÐ ÞAÐ KEMUR NÝTT KRÍLI Í FANGIÐ Í JÚNÍ OG ERUM VIÐ MJÖG SPENNT YFIR ÞVÍ. KAREN HELGA VERÐUR 2 ÁRA DÚLLA, OG VIÐ BÚIN AÐ VERA SAMAN Í HEIL 4 ÁR SEM ER FREKAR STUTTUR TÍMI MIÐAÐ VIÐ HVAÐ ER BÚIÐ AÐ GERAST!! EN ÉG HEF NÚ ALDREI VERIÐ ÞEKKT FYRIR ÞAÐ AÐ LIFA HÆGT. EN GÓÐA SKEMMTUN Í KVÖLD HVAR SEM ÞIÐ ERUÐ KÆRU VINIR OG GANGIÐ HÆGT UM GLEÐINNAR DYR. LÁTIÐ EKKI VÍN BREYTA YKKUR Í SVÍN OG MUNIÐ AÐ UNDRALANDIÐ ER ÁVALLT OPIÐ FERÐALÖNGUM. GANGI YKKUR ÖLLUM VEL OG HLÚIÐ AÐ YKKAR FÓLKI.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 24. desember 2008
Gleðilega jólahátíð allir saman
Við í Undralandi viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og yndislegs nýs árs. Hér er alltaf opið hús fyrir þá sem vantar gistingu og endilega verið velkomin til okkar. Hafið það sem allra best nú og alltaf og munið hvað okkur þykur vænt um ykkur. Jólasveinarnir í Undralandi
Líf án ástar er eins og köld öskuhrúga í arninum, eldurinn er dauður, snarkið og hlátrarnir hljóðnuð og birtan horfin. Ljósinu getum við miðlað með tvennum hætti. Annaðhvort með því að vera eins og kertið eða eins og spegillinn sem speglar það.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 5. desember 2008
Jólastuð í Undralandi
Fór í jólaklúbb í gær og það var svooooo gaman og mikið helgið að ég er gjörsamlega bara hás í dag Mikið spjallað og mikið hlegið og hlustað á Emilíönu Torrini-nýja og að sjálfsögðu tók ég með mér nýja Jóla-Stebba svona fyrir stemninguna og vá hvað þessi diskur er ljúfur. Við borðuðum svaka góða heita rétti, salöt, svaðalega súkkulaðiköku og marengsköku. Ó.M.G. og svo fékk ég þvílíkan matpakka frá leynivininum í morgun þannig að það er nóg til hér í ísskápnu, kistunni og í búrinu. Bökka sæta sagði okkur í gær að hún væri preggó eins og ég og við værum bara á svipuðum tíma. ÆÐI og ég spurði hana hvenær hún færi í 12vikna sónarinn og þá sagði hún á þriðjudaginn kl. 12.30 og ég alveg HA??? Við förum á þriðjudaginn kl.13.00 ekkert smá krúttlegt, við erum bara á sama tíma og báðar að springa úr grobbi
Leynivinavikan er náttúrulega bara mesta og besta uppfinning í heimi svona rétt fyrir jólin, þetta er svo gaman og allir taka þátt og bréfin sem maður fær nægir til að fylla mann að hamingju út næsta ár!!! En vildi skrifa smá pistil, hef lítið sem ekkert skrifað hér. Á boðstólnum í desember er alltaf púrtvín með kaffibollanum og svo að sjálfsögðu smákökur þannig að það er á nógu að taka þegar þið kíkkið í jólalandið Undraland. Verið velkomin, ég set með eina mynd af jólastelpunni úr lokatímanum í Body pump því þar var sko líf og fjör og jólaandi sem allir ættu að tileinka sér á þessum tíma. Til að sjá fleiri myndir getiði kíkt á síðuna hjá Guðný Æskuvinkonu enjoy! www.123.is/guruguru
Eigiði góða tíma framundan elsku vinir, jólaknús frá okkur í Undralandinu
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 30. nóvember 2008
Ég kemst í jólafílíng(Baggalútur)
....brjálaðan jólafílíng, ég kemst í jólafílinginn með þér, með þér oúooó
Jæja þá er kransinn orðinn klár en ég finn ekki myndavélasnúruna mína þannig að ég set bara mynd af þessum kransi í staðinn en minn er reyndar miklu miklu miklu flottari sko! Karen Helga kveikti á kertinu með pabba sínum og vildi blása strax á það aftur, dúllan.
En við sendum knús á alla þá sem okkur þekkja og vonum að aðventunni fylgi skemmtilegt jólastress eins og alltaf, kærleikur og von. Tendrum ljósið á Spádómskertinu í dag.
Jólakveðjur úr kökuhúsinu Undralandi
XXX
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 22. nóvember 2008
Bjútíbomban breytir skammdeginu í sólarljós bara með því einu að vera til :-)
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 14. nóvember 2008
Tékkið á þessu
http://www.youtube.com/watch?v=eZO3BlQGmRA
Annars vona ég bara að þið eigið ágæta krepputíma og við lifum þetta af í sameiningu
Kv. L
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 29. október 2008
...Could I have this kiss forever?!
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Bloggvinir
Spurt er
33 dagar til jóla
Af mbl.is
Erlent
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
- Handtökuskipun á hendur Netanjahú og Gallant
- Leitar á ný mið eftir kolranga könnun
- Mun borða nærri 900 milljóna króna banana
- Skutu langdrægri eldflaug í átt að Úkraínu
- Flækingshundar auka áhuga á pýramídum
- Tveir Danir á meðal ferðamanna sem létust