Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009

images.jpgÉG HLAKKA SVO TIL AÐ SPRENGJA UPP ALLAR TILFINNINGAR ÁRSINS 2008. EKKI ÞAÐ AÐ ÁRIÐ ER BÚIÐ AÐ VERA FRÁBÆRT Í ALLA STAÐI OG VIÐ EKKI BÚIN AÐ FARA ILLA ÚT ÚR ÞVÍ ÞANNIG AÐ VIÐ ERUM MJÖG LIGEGLAÐ Í DAG. ÞAÐ ER BARA SVO GOTT AÐ ENDA ÁR EINHVERN VEGINN. FARA HRESS INN Í NÝTT ÁR, MEÐ NÝ MARKMIÐ OG NÝJA HUGSUN. HJÁ OKKUR VERÐUR AÐALMÁLIÐ Á ÞVÍ NÆSTA AÐ ÞAÐ KEMUR NÝTT KRÍLI Í FANGIÐ Í JÚNÍ OG ERUM VIÐ MJÖG SPENNT YFIR ÞVÍ. KAREN HELGA VERÐUR 2 ÁRA DÚLLA, OG VIÐ BÚIN AÐ VERA SAMAN Í HEIL 4 ÁR SEM ER FREKAR STUTTUR TÍMI MIÐAÐ VIÐ HVAÐ ER BÚIÐ AÐ GERAST!! EN ÉG HEF NÚ ALDREI VERIÐ ÞEKKT FYRIR ÞAÐ AÐ LIFA HÆGT. EN GÓÐA SKEMMTUN Í KVÖLD HVAR SEM ÞIÐ ERUÐ KÆRU VINIR OG GANGIÐ HÆGT UM GLEÐINNAR DYR. LÁTIÐ EKKI VÍN BREYTA YKKUR Í SVÍN OG MUNIÐ AÐ UNDRALANDIÐ ER ÁVALLT OPIÐ FERÐALÖNGUM. GANGI YKKUR ÖLLUM VEL OG HLÚIÐ AÐ YKKAR FÓLKI.Heartimages1.jpg


Gleðilega jólahátíð allir saman

jolakortamynd.jpgpc200279.jpgVið í Undralandi viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og yndislegs nýs árs. Hér er alltaf opið hús fyrir þá sem vantar gistingu og endilega verið velkomin til okkar. Hafið það sem allra best nú og alltaf og munið hvað okkur þykur vænt um ykkur. Jólasveinarnir í Undralandi Heart

 

Líf án ástar er eins og köld öskuhrúga í arninum, eldurinn er dauður, snarkið og hlátrarnir hljóðnuð og birtan horfin. Ljósinu getum við miðlað með tvennum hætti. Annaðhvort með því að vera eins og kertið eða eins og spegillinn sem speglar það.Heart


Jólastuð í Undralandi

Fór í jólaklúbb í gær og það var svooooo gaman og mikið helgið að ég er gjörsamlega bara hás í dagW00t Mikið spjallað og mikið hlegið og hlustað á Emilíönu Torrini-nýja og að sjálfsögðu tók ég með mér nýja Jóla-Stebba svona fyrir stemninguna og vá hvað þessi diskur er ljúfur. Við borðuðum svaka góða heita rétti, salöt, svaðalega súkkulaðiköku og marengsköku. Ó.M.G. og svo fékk ég þvílíkan matpakka frá leynivininum í morgun þannig að það er nóg til hér í ísskápnu, kistunni og í búrinu. Bökka sæta sagði okkur í gær að hún væri preggó eins og ég og við værum bara á svipuðum tíma. ÆÐI og ég spurði hana hvenær hún færi í 12vikna sónarinn og þá sagði hún á þriðjudaginn kl. 12.30 og ég alveg HA??? Við förum á þriðjudaginn kl.13.00 ekkert smá krúttlegt, við erum bara á sama tíma og báðar að springa úr grobbiInLove

2bc012c3-d3a6-4a2c-b9d6-45137dfcf94b_s.jpgLeynivinavikan er náttúrulega bara mesta og besta uppfinning í heimi svona rétt fyrir jólin, þetta er svo gaman og allir taka þátt og bréfin sem maður fær nægir til að fylla mann að hamingju út næsta ár!!! En vildi skrifa smá pistil, hef lítið sem ekkert skrifað hér. Á boðstólnum í desember er alltaf púrtvín með kaffibollanum og svo að sjálfsögðu smákökur þannig að það er á nógu að taka þegar þið kíkkið í jólalandið Undraland. Verið velkomin, ég set með eina mynd af jólastelpunni úr lokatímanum í Body pump því þar var sko líf og fjör og jólaandi sem allir ættu að tileinka sér á þessum tíma. Til að sjá fleiri myndir getiði kíkt á síðuna hjá Guðný ÆskuvinkonuGrin enjoy! www.123.is/guruguru

Eigiði góða tíma framundan elsku vinir, jólaknús frá okkur í Undralandinu

 


Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband