Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008
Fimmtudagur, 31. janúar 2008
Hvað varð um gömlu teiknimyndirnar?
Já þar sem ég er núna í fæðingarorlofi með mína yndislegu prinsessu er kúrt svolítið fram eftir morgni og einnig kveikt á tv seinni partinn þegar pabbinn kemur heim. En það sem ég skil ekki og mun aldrei skilja af hverju er verið að sýna þessar teiknimyndir sem eru sýndar núna. Þetta snýst allt um einhverjar ofurhetjur sem drepa mann og annan og ef ekki þá eru það skrímsli sem breytast í eitthvað annað til að drepa einhvern annan, ég bara skil þetta ekki og ég skil ekki heldur hver velur þetta.
Hvað varð um teiknimyndirnar sem maður vaknaði spenntur til að horfa á um helgar eins og "Bangsi bestaskinn, nebbarnir, í Óskaskógi, Kærleiksbirnirnir, Einu sinni var, Kalli og Kýklóparnir, Foli minn litli og fleira og fleira" sem senda börnum actually umhyggju og kærleik í stað ofbeldis! Ekki það að foreldrar geta alveg valið hvað börnin þeirra horfa á, en þetta er í almennu sjónvarpi og ég meina, ÞAÐ ER EKKI EINS OG TEIKNIMYNDIR VERÐI ÚRELLTAR!!!! Ég heimta að þeir hjá sjónvarpinu og stöð 2 fari að sýna þessar gömlu góðu aftur því það virðist koma fram í annarri hverri umræðu í þjóðfélaginu..."hvað verður um þessa kynslóð, ofbeldishneigð, hatur, eiturlyf......og eitt leiðir af öðru" Ég held að fólk ætti að byrja á því að leita aðeins dýpra og byrja á sjónvarpsefninu sem núverandi "kynslóð" er að horfa á!
En takk fyrir Janúar, næsta markmið er að klára Febrúar með bros á vör. Good Day
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 28. janúar 2008
Ætli sér stórt undir honum?! Jæks
Hollendingurinn Wim Hof sem kallar sig tantra-meistarann bætti eigið heimsmet þegar hann stóð í glerbúri þakinn ís í 72 mínútur. Hann sló metið á götu í New York í gær.
Ég var samt mjög fegin að sjá að þetta var ekki vinur minn hann Mái sem var þarna í kerinu og er líka glöð yfir því að þau Hela eru að flytja frá Hollendingunum og alla leið til Washingtin D.C. Við munum heimsækja ykkur þangað mín kæru.
Ég er farin á göngu, ekki nakin, ekki með hárband og ekki veik á geði, heldur bara í hlýjum snjógalla með virðingu fyrir Vetri Konungi. Annars bið ég fyrir kveðju á það sem eftir er undir þessum peija, ja ef það er eitthvað eftir það er að segja. Over and OUT. Lísebet Hauksdóttir
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 26. janúar 2008
Survivor!!! Hverjum getur þú treyst?
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 25. janúar 2008
Sílíkonbrjóst rotna ekki, þau springa!
Já mikið rétt, ég las þessa skemmtilegu grein í "24stundir" í morgun við kaffibollann minn og kertaljósið. Þar kom fram þessi stórglæsilega mynd af Pamelu Anderson og þar fyrir neðan stóð að menn þyrftu að gjöra svo vel að láta vita um hvort þeir/þær væru með sílíkon ef brenna ætti líkið hjá viðkomandi því þegar það gleymist að segja frá því þá springur sílíkonið og gjöreyðileggur líkbrennsluofninn og eru útfarastjórar ekki sáttir við þessa þróun mannsins. Damn ég sem var í sílíkon um síðustu helgi í Reykjavík! En ef ég finn jákvæðu hliðina á þessu þá getur hann Rúnar minn alltaf fengið að eiga brjóstin mín, ef ég dey á undan, þá skal ég sjá til þess að skemma enga ofna og láta fjarlægja þau í þínar hendur ástin mín
Hvað er málið með "Brjálaða veðrið" í Reykjavík og nágrenni...Jesús, þetta fólk kann náttúrulega bara ekki á svona yndislegheit. Þetta er bara eins og hver annar dagur á góðum vetri í Ólafsfirði en það er gott ef þeim finnst þetta fréttnæmt. Það væri ljótt ef það þyrfti að sýna frá hverjum einasta mokstri af götunum hér, ég held að fólkið ætti að sjá ruðninginn við hliðina á húsinu mínu áður en það fer að segja að það sé svo mikill snjór að elstu menn muni ekki eftir öðru eins...ég á hreinlega ekki til orð, komið bara í heimsókn því ég mun halda námskeið í snjómokstri, virkisgerð, snjókasti, eltifönn, snjóhúsabyggingu, rennsli og stökki. Skráning í síma 466-2737
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 23. janúar 2008
Ledgerinn er dáinn :-/
Díses hvað ég fékk mikið sjokk í gærkveldi þegar ég var að flakka á skjánnum og lenti á Sky News og sá þá fyrisögnina um að sætasti sæti hefði fundist látinn á heimili sínu kl. 20:30 vegna lyfja-overdose! Ég bara trúi þessu ekki, er meira að segja nýbúin að horfa á "10 things I hate about you" myndina okkar Hallberu og Þóreyar og dást af þessum riddara. Ég hringdi náttúrulega í Hallberu og sagði "Veistu hver er dáinn?" kannski ekki besta setning sem maður byrjar á í síma, en ég bara varð....hún var eiginlega hálf fegin þegar nafnið var ekki af neinum nákomnum eða einhverjum sem við þekktum, en engu að síður í mínus með mér yfir þessu sæta gæja En þar sem ég get ekki sent aðstandendum hans blóm þá hef ég ákveðið að tileinka næstu kvöldum Heath Ledger og horfa á myndirnar hans þar sem ég á þær allar og að sjálfsögðu mun ég byrja á "10 things...", því næst "Knights Tale" og svo framvegis, þannig að þeim sem langar að vera memm.....mætið bara og já...komið með nammi eða ís eða köku óg rjóma
Já það gengur sem sagt frekar erfiðlega að koma sér úr jólaátinu en okkur er alveg sama þar sem Karen Helga er farin að spítta í og drekka meira af mömmu sinni og það er mín brennsla! Það eiga tveir snillingar stórafmæli í dag og vil ég óska þeim innilega til lukku með það. Í fyrsta lagi er það hún yndislega amma mín og nafna Lísa. Hún er 70 ára þessi elska og talaði ég við hana í heilar 50mín áðan og alltaf finnst mér hún jafn fyndin Hinn snillingurinn er hann Óli á Bjargi og er hann 50 ára í dag sem bauð okkur í PARTEI á laugardaginn kl. 20 en ég gleymdi að spyrja hvort maður mætti koma með barn???!
Karen Helga er búin að lifa í 104 daga og ég fattaði það um leið og þessi blessaði Borgarstjórn hrundi aftur því hún fæddist á þeim degi þegar hún hrundi síðast og meira að segja á sama tíma! En hún er mun hraustari en þetta lið í borginni og stendur sig í gegnum allt, litla hetjan mín Ætlum að reyna að byrja að blogga aftur hér en það er svona þegar prinsessan hefur hug manns allann að maður uppfærir bara hennar síðu, endilega kíkkið á hana....www.barnanet.is/lif
Gísli til hamingju með sveindóminn 1995
Kiddi góða ferð til Orlando, viltu kaupa "Salt water taffy" handa mér?
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006