Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
Miðvikudagur, 24. október 2007
Eldist myrkfælni af manni?
Hvað er málið að maður haldi að maður verði hraustari og sterkari hvað varðar myrkfælni þegar maður eldist? Það er sko bara algjör kolvitleysa, allavega í mínu tilviki þar sem ég ætlaði nú aldeilis að taka mér yndislegan og langþráðan stuttan göngutúr í rigningunni í gærkveld. Ég var búin að velja mér stað og allt, ætlaði rétt að labba 2km hérna upp að Ármannsvatni, en viti menn ég var lögð af stað yfir brúnna en þá fór ég í minn skemmtilega "Ímyndunarleik" og myrkrið tók yfirhöndina og öll sú hræðsla sem ég hef nokkurntíma haft gagnvart því undanfarin æskuár, margfölduðust um 100 og ég fríkaði út í myrkrinu þarna hinu megin. Hljóp til baka yfir brúnna og labbaði bara upp á Hornbrekku og til baka þar sem voru stinnir og traustir ljósastaurar alla leiðina - Hugrökk mamma!!
Kom svo heim eftir skemmtilegt trimm með hjartað í buxunum og ætlaði að bjóða dóttur minni með mér í sturtu, en nei þá var hún sofnuð eins og vanalega þannig að það var tekið skrúbbþema þar í staðinn og maski og lotion og ég veit ekki hvað og hvað. Ætla sko ekki að vera ein af þeim sem fallast undir rannsóknina hjá F.S.A. þar sem 60%kvenna hætta bara öllu og algjörlega að hugsa um sjálfan sig og verða bæði of feitar á meðgöngu og jafna sig síður eftir meðgöngu, og í öllum þessum tilvikum hafa þær þurft að enda í keisaraskurði vegna þess að barnið ýmisst situr, því þær hafa setið á rassinum sínum líka síðan það kom jákvætt á prufuna....NO NOT ME THANK YOU VERY MUCH. Ég var mjög vel undirbúin fyrir þetta allt saman og er öll að renna saman aftur og það á frekar stuttum tíma, að mér finnst, þannig að þið sem eruð óléttar núna, viljiði bara drífa ykkur í sund og vera þar þangað til kemur að fæðingu, kannski er ég búin að tala í marga hringi, en mér er alveg sama, ég skil þetta
Bidda sæta mín og Mikael Breki ætla að renna á okkur í dag og vá hvað ég hlakka til að sjá þau. Litli kútur er orðinn svo stór að það verður örugglega skrítið af miða hann við prinsessuna okkar allavega, og mér finnst hún vera orðin risastór á 2 vikum. Það er meira að segja til kaka og allt handa þeim þar sem Rúnar bakaði í gær. Reyndar er líka fínt tilefni til að fagna þar sem í dag er 24. október og það eru hreinlega 10 ár síðan ég fékk bílpróf. Já og hann Einsi minn á líka afmæli, þannig að við óskum honum innilega til hamingju með það.
Horfðum á Venna Páer í gær og þetta eru náttla bara snilldarþættir, mikið hlegið og ætla ég að enda þennan pistil á því að negla hérna inn minni uppáhaldssetningu úr þættinum í gær:
"Bjössi minn, langtímaáhrif eru bara LÖNG skammtímaáhrif".......ví
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 15. október 2007
Prinsessa fædd 11. október kl. 14:58
Já eins og flestir vita þá rættist spádómurinn úr bollanum mikla hjá henni Arndísi og litla stúlkan okkar fæddist kl. 14:58 á fimmtudaginn. Stundin var svo yndisleg að það er ekki hægt að lýsa henni á neinn hátt með orðum. En við erum sem sagt komin heim og byrjuð að takast á við þetta frábæra foreldrahlutverk sem okkur hefur verið falið og erum við bara vel stemmd í það og allt sem tengist því
Sama dag og skvísan mætti í heiminn eða nánast á sömu mínútu þá hreinlega hrundi Borgarstjórnin í Reykjavík þannig að það er spurning hvort maður eigi að túlka það að hún verði sami stormsveipur og mamma sín eða hvað?! Við sjáum til Annars verður örugglega eitthvað lengra á milli pistla á þessari síðu þar sem við erum gjörsamlega sokkin í hina síðuna. Þannig að ef þið hafið áhyggjur á því að við séum ekki að standa okkur þá kíkkiði bara á www.barnanet.is/lif og sjáið hvað við erum að bralla. En þangað til næst þá bið ég ykkur bara að lifa heil og hafið það sem allra best.
Kveðjur til ykkar frá okkur...Lísa, Rúnar og prinsessan
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 10. október 2007
Lögð inn og komin heim!
Jújú, helginni eyddum við í afslöppun en samt sem áður þá rauk blóðþrýstingurinn upphjá mér og bjúgurinn var óstjórnlegur þannig að þær vildu fá mig inneftir. Eg fór í einhver test og þá kom í ljós að ég var komin með meðgöngueitrun og var því lögð inn. Þurfti að gista í 2 nætur og skila þvagi í sólarhring og áorkaði hvorki meira né minna en 3lítrum takk fyrir, geri aðri betur. En þetta var svo allt rannsakað í dag og var þetta orðið það vægt að þær leyfðu mér að fara heim þessar yndislegu ljósmæður þarna innfrá. Verð bara að passa mig og liggja og gera ekki neitt. Fór í mónitor og þar voru komnir samdrættir inn í myndina þannig að hver veit hvort eitthvað sé að fara að gerast, vonandi, held bara að við séum að springa úr spenningi.
Enn ég bið ykkur hér eins og á baby-síðunni að vera ekki reið þó þið fáið ekki skilaboð um leið og allt gerist því við ætlum hreinlega ekki að stressa okkur á því, ókey?? Við þekkjum svo hriaklega marga sem okkur þykir ofsalega vænt um og við erum ekki að gleyma neinum þó svo hugurinn sé ekki alveg hjá ykkur á næstu dögum. Takk fyrir skilninginn :-D Við getum þó lofað ykkur því að þið komist að því á endanum hvað gerist, hvort kynið var, stærð, þyngd og lengd og hvernig allt gekk, believe me. .....With Love Lísa and Rúnar
Við mamma fórum í bollaspá í gær til Arndísar galdrakonu og vá hvað það var skemmtilegt. Hún benti mér m.a. á það að það væri 1 dagur í að krílið kæmi í heiminn og við skulum svo sannarlega vona að það sé rétt, þá er það kannski bara á morgun, ja eða hinn. Plís bara ekki lengur en það! Ég veit að ykkur finnst kannski ekkert rosalega spennandi að lesa bloggið þessa dagana þar sem allt snýst um væntanlega fæðingu og svolleiis en sorry það bara kemst ekki mikið annað inn í kollinn minn þessa dagana
En ef þið hafið ekkert að gera þá ligg ég heima og læt mér leiðast því ég má ekki hreyfa mig þannig að þið eruð velkomin í heimsókn að stytta mér stundirnar. Thanks...bye
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 6. október 2007
Let it snow, let it snow - LET IT SNOW!
Já það vottaði örugglega fyrir þessu dásamlega jólalagi í hugum margra Ólafsfirðinga þegar þeir stigu úr rekkju í morgun og litu út um gluggann. Það var gjörsamlega allt hvítt, sást ekki í bílinn okkar, gras né götur og gröfurnar voru mættar að skafakl. 10 í morgun. Oh hvað mér fannst þessi snjókoma kósý. Ég var næstum því búin að skella mér í snjógallann, hringja í Hilmar og biðja hann að koma út og gera virki en sökum ástands míns þessa dagana þá ákvað ég bara að leika við Rúnar í staðinn Ég reyndar hringdi í stórfrænda minn Kristján Már Kristjánsson 2gja ára snilling og spurði hann hvort hann ætlaði ekki út því hann er sem sagt hræddur við snjó þessi snúlla. Hann sagðist ekki ætla út því hann myndi ekki þora og skammaðist sín sko ekkert fyrir það. Við kíktum síðan til Bróa og Helgu og þau sögðu okkur að Helga hefði náð honum í útigalla, stígvel, húfu og sólgleraugu en hann vildi ekki snerta snjóinn og stóð í útidyrahurðinni og horfði á mömmu sína á meðan hún gerði snjókall hehehehe, ég bara get ekki hætt að brosa yfir þessum snillingi!
Leikurinn í dag var hinn ágætasti og hefði ég reyndar viljað sjá á bikarnum í hendur Fjölnismanna bara út af því hvernig aðstæðum þeir voru í áður en leikurinn hófst. Án "sinna" bestu leikmanna þar sem FH-ingar voru hræddir við þá. Aumingjalegt að mínu mati, jújú fengu titilinn og 500þús kalli meira en þeir bara gátu ekki neitt og voru Fjölnismenn að sína miklu meiri baráttu sérstaklega þegar leið á leikinn. Hefði viljað að þeir næðu að halda 1-1 og unnið þetta svo á vító, djös snilld hefði það verið. En svona er boltinn og ég óska FH-ingum til hamingju og góða skemmtun í rallllinu í kveld...
Sjáumst á skautum á morgun
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 2. október 2007
Undraland :-D
Jæja þá er það hér með ákveðið að kotið okkar krúttlega heitir "Undraland" og fékk minn heittelskaði að ráða og af því að hitt fannst honum svo væmið þá ákváðum við að skella þessu frekar upp í grín en hitt og vá hvað ég hlakka til að fá mér svona skilti til að setja á húsið....Wunderbar! En guð minn góður það styttist og styttist í settann dag og ég trúi varla að október sé runninn upp og hvað þá að það er kominn 2. þess mánaðar sem þýðir að ég á litla 10 daga eftir c.a. best að segja plús/mínus, gæti komið fyrr og gæti farið framyfir jaaa...t,d 14 daga en það væri mjög týpískt fyrir mig og mína heppni. Ekki það að ég er mjög stundvís manneskja og ætlast auðvitað til þess að barnið mitt verði það líka
Guðný ÆSKUVINKONA mín kom í heimsókn til okkar í gær og smellti okkur á filmu í hinum ýmsu stellingum og var það bara hrikalega gaman og ég held að hún hafi skemmt sér líka konunglega. Við vorum út um allt hús og það var svo notalegt að gera þetta bara heima og hafa kósíheit og mun þetta koma á netið von bráðar, kannski bara í kvöld eða á morgun hver veit. En þar sem við erum með svo lítið myndapláss hér og að barnið fer nú alveg að koma í heiminn þá ákváðum við bara að gera síðu á barnanet og henda inn myndunum þar, nú ef hlutirnir ganga ekki upp eins og við ætlum okkur þá var okkur bara ekki ætlað þetta allt saman strax, en verum jákvæð og horfum fram á við. Slóðin er www.barnanet.is/lif ef þið viljið deila þessu með okkur þá eruð þið velkomin
Við vorum inn á Akureyri áðan í vaxtarsónar og það leit allt rosalega vel út, gott flæði um naflastrenginn og hjartslátturinn gladdi minn hjartslátt svo mín klökknaði. Hinar ýmsu mælingar voru gerðar og taldi fæðingarlæknirinn að við værum komin upp í svona 13-14mörk þannig að það er alveg frábært, ég var farin að halda að ég væri að ganga með eitthvað 20marka barn því allir eru að segja mér hvað ég hef stækkað hrikalega mikið undanfarið en mér var sem sagt mjög létt eftir þessa skoðun og hlakka bara til. Hittum Óla og Erlu frá Blönduósi þá var hún að fæða í gær eða það endaði reyndar í keisara og eignuðust þau 16marka strák og 52cm og vá hvað hann var sætur. Innilega til lukku með frumburðinn..En nú er það bara að liggja áfram og reyna að halda bjúgnum aðeins niðri(sjá nýja mynd í albúmi), þetta er hreinlega eins og Gyða sagði svo réttilega...kususpenar hehehe
Over and out...L and R
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006