Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2006
Þriðjudagur, 4. apríl 2006
Styttist í Köben og Norge :)
Dí ég hlakka svo til að fara til Hallberu og Smára að ég er að fríka út, á eftir að gera dáltið mikið þangað til en það hlýtur að reddast eins og allt annað. Tók daginn snemm og horfði á Ísland í bítið og þar var verið að tala um "vandræðafíkn" og ég held að ég sé haldin þessum sjúkdómi. Hann skilgreindi hann þannig að þetta væri þegar fólk frestaði að t.d. skila verkefnum fram á síðustu stundu eða ganga frá einhverjum málum allt fram á síðustu stundu og gerir þetta svo allt í einu og finnur þá þessa vellíðurnartilfinningu sem grípur mann þegar skilum er lokið, jújú þetta er orðið fíkn í þjóðfélaginu í dag, hvað er málið. Hann sagði einnig að það væri sjálfsblekking ef maður segði "Ég vinn best undir álagi" því þar er bara verið að hlaða fyrir vandræðafíknina!! Sérstakt..
En allavega þá leigðum við okkur snilldarræmu í gær. my name is DOMINO harvey and im a bountyhunter, sjitt hvað hún var svöl. og svo var tekið á því með Ally McBeal í morgunsárið. Snilldarþættir sem láta manni líða rosavel og þokkalega var ég búin að gleyma þeim. En nú eru þeir alltaf "gamla spólan" í bónusvídeó, jí-ha. Fer að kenna á Óló í dag hins vegar í góðum fílíng og verður nú tekið aðeins á því fyrir páskafrí Meine Damen und Herren.
Munið að vera góð við hvort annað og líka það að það leysir ekkert að rjúka bara út eins og þjálfarinn hjá Blakinu í KA, þá missir maður bara vinnuna....Ísland í Bítið sko, sjitt hvað ég er orðin fréttnæm.........Bæbb
Mánudagur, 3. apríl 2006
Just testing...
Hæ hó þá er ég búin að næla mér í enn eitt stykki af bloggsíðu því það vill svo til að ég gefst alltaf upp á þessu bla bla-i, þá sérstaklega þegar stelpan þarf að fara að setja inn myndir. Hata að sækja um eitthvað svona photobull sem ég skil svo ekkert hvað á að gera þannig að nú varð fyrir valinu íslensk síða, sjáum hvernig það gengur.
En annars er ég bara enn að grobba mig yfir landsmótinu og þessari frábæru sprettgöngu sem tortímdi líkama mínum og sál, umm það er ekkert betra en blóðbragð í minni og mjólkursýra í öllum æðum :) Er loksins að ná mér upp úr þessari blessuðu fuglaflensu sem ég fékk eftir keppni og verður fyrsta æfingin tekin í kvöld eftir vinnu og sjitt hvað ég hlakka til því hér með staðfesti ég það enn og aftur og hreyfingarleysi leiðir til þunglyndis. PUNKTUR.
Bið að heilsa ykkur í bili ætla að fikta aðeins meira í þessu bloggbulli ví :) ciao bella
Mánudagur, 3. apríl 2006
Fyrsta bloggfærsla
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Bloggvinir
Spurt er
33 dagar til jóla
Af mbl.is
Viðskipti
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
- Óttast að fólk fari aftur að eyða peningum
- Innherji: Frekari uppsagnir en nú tveir forstjórar
- Eigið fé er dýrasta fjármögnunin
- Skoða skráningu á Norðurlöndum