Sunnudagur, 16. apríl 2006
Coming home :-D.... Já og gleðilega páska!
Jæja börnin góð þá erum við búin að pakka upp í heimferðina. Áttum yndislegan dag í gær í Köben í tvílíka blíðu veðrinu. Tókum daginn snemma og tókum lest niður í miðbæ sem við komumst að síðar að væri bara korters ganga eftir allt saman. Kíktum á Tívolíið og röltuðum svo niður Strikið og vá ó vá hvað það var flott og gaman að upplifa þetta. Fólk út um ALLT gjörsamlega og sól og bongó blíða bara. Löbbuðum alveg í gegn og yfir torgið og settumst niður við Nyhavn. Dí hvað ég heillaðist af þessari borg. Stefni á að flytja hingað eftir nokkur ár, án gríns. Við getum orðað það þannig að hún hafi gleypt mig af sjarma. Svo ákváðum við að fara í svona siglingu fra Nyhavn sem tók 1 klst. Eftir c.a.20mín þá þurfti ég svoleiðis að pissa að ég var að drepast. Náði nú samt að halda alveg í mér þangað til það voru komnar 30mín í viðbót, þá var ég farin að taka lamaze-öndunaræfingar og ég veit ekki hvað og það var eins og ég væri með krampa í þvagblöðrunni og þegar átti að stíga úr sætum þá gat ég ekki rétt úr mér, né beðið í röðinni þannig ég stökk í land og skipperinn tjúllaðist en ég hljóp inn á restuarant og var rekin út því ég þurfti að kaupa til að mega pissa. Þannig að ég fann annan stað þar sem Rúnar var kominn og þurfti hann líka að pissa en nota bene ég var búin að halda í mér í 40mín, hann tróð sér fyrir framan mig og byrjaði að míga og ég fór næstum því að grenja mér var svo illt en hann alveg ég verð enga stund og svo beið ég og beið og beið og hann alveg..."Ó, ég hélt þetta hefði ekki verið svona mikið"....þvílíkur herramaður, EÐA EKKI. TAKK Rúnar!!
Eftir þessa miklu dramatík þá stakk ég hann af í smá stund og svo fórum við á ítalskan veitingastað Al Mercante, illa flottur sko. Baldur og Sassa buðu okkur svo í heimsókn og var það rosagaman að fá að kynnast þeim. Sötruðum nokkra öllara og skelltum okkur svo í singstar....já gott fólk-Rúnar fór í SINGSTAR!! :-D Hann og Baldur voru saman í liði þannig að þetta var bara létt fyrir okkur Sössu. Ég set bara inn myndir Þegar við komum á Ak. En núna erum við bara að bíða eftir Baldri því þessi elska var svo vænn að samþykkja að keyra okkur á flugvöllinn. Matarboð hjá Tengdó í kvöld í sumarbústaðnum í Hvítársíðu þannig að við verðum bara að biðja til Guðs um að við fáum smá páskaeggjasmakk þegar við mætum þangað. Annars bara Gleðilega Páska börnin góð og munið að vera góð hvort við annað....... Knús og kram...Lísa og Rúnar
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Athugasemdir
Gott að vita af ykkur á landinu góða á ný... sammála með Köben geggjuð borg og hér langar mig að eiga heima eftir einhver ár - Segi og skrifa :) Takk fyrir geggjaða ferð og heyrumst síðar XXX Þórey og co
Þórey (IP-tala skráð) 16.4.2006 kl. 17:32
Hæ elskurnar og gleðilega páska :) vá hvað það hefur verið gaman hjá ykkur... ég er sko farin að hlakka til að sjá ykkur þegar þið komið, já og þetta með að flytja til Köben... hehemm við skulum ræða þetta betur þegar heim er komið!!! kv Valga sín
Valgerður (IP-tala skráð) 17.4.2006 kl. 10:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.