Þriðjudagur, 12. febrúar 2008
12. febrúar 2001
er alltaf það eina sem er í huga mínum þennan dag. Bílslysið, missirinn, batinn og að fara aftur út í lífið! Það er ekki séns að þó að öll þessi ár séu liðin að maður láti sér líða eitthvað betur, eða öðruvísi, reynir að vera jákvæðari eða eitthvað bara, maður getur hreinlega ekki stjórnað þessum tilfinningum. Ég ætla bara að segja alveg eins og er að dagurinn byrjaði vel. Ég fór með dóttur mína í 4. mánaða skoðun en þegar ég kom inn hérna heima og lokaði hurðinni þá gjörsamlega brotnaði ég saman og það út af einu fallegu sms-i frá góðvinkonu minni, það þurfti ekki meira en nokkur falleg orð. Ég fór að skoða myndir af Magga og lesa yfir minningargreinarnar sem ég á innplastaðar og átti mína stund að mér fannst. Eftir að ég hafði lokið þessu af þá var ég tilbúin að feisa daginn, gesti og símtöl.
Allt gekk rosalega vel, ég bakaði þvílík góðgæti og bauð í kaffi og vá hvað það var frábært að sjá hvað maður á alltaf góða að. Ég er svo heppin og þakklát fyrir lífið og allt sem fylgir því. Takk.
Það sem ég vil segja við ykkur er..."Við getum þrammað þreytulega eftir fjölförnum stígnum eða notið þess að villast í skógarþykkninu beggja vegna"
Lísa
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Athugasemdir
Elska þig sæta - XXX
Þórey Sjöfn (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 09:28
Elsku Lísa mín!
Ég táraðist þegar ég las þessa færslu, fór að hugsa um gömlu tímana sem ég eyddi með ykkur Magga þegar maður mætti í Krabbastíginn já og utan Krabbastígsins... Alltaf svo kósý hjá ykkur eskan og ekkert nema hamingjan á þeim bænum.. Vona þú hafir það gott eskan, já og þið öll og já við eigum að lifa við það að lífið er jú bara yndislegt og eigum að lifa því meðan við getum með gleði og hamingju í hjarta.
knús á ykkur á Óló frá okkur Sigurði Gísli í Skessugili...
Jóhanna (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 19:52
Sterk, helbrigð og mighty fine. Þú ert hörkukvendi :)
Góðar stundir
Gillinn (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 19:12
Knús frá mér dúllan mín. "Júruselið" geymdi góðar minningar"
Love you...
Berglind
Berglind (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 10:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.