Miðvikudagur, 23. janúar 2008
Ledgerinn er dáinn :-/
Díses hvað ég fékk mikið sjokk í gærkveldi þegar ég var að flakka á skjánnum og lenti á Sky News og sá þá fyrisögnina um að sætasti sæti hefði fundist látinn á heimili sínu kl. 20:30 vegna lyfja-overdose! Ég bara trúi þessu ekki, er meira að segja nýbúin að horfa á "10 things I hate about you" myndina okkar Hallberu og Þóreyar og dást af þessum riddara. Ég hringdi náttúrulega í Hallberu og sagði "Veistu hver er dáinn?" kannski ekki besta setning sem maður byrjar á í síma, en ég bara varð....hún var eiginlega hálf fegin þegar nafnið var ekki af neinum nákomnum eða einhverjum sem við þekktum, en engu að síður í mínus með mér yfir þessu sæta gæja En þar sem ég get ekki sent aðstandendum hans blóm þá hef ég ákveðið að tileinka næstu kvöldum Heath Ledger og horfa á myndirnar hans þar sem ég á þær allar og að sjálfsögðu mun ég byrja á "10 things...", því næst "Knights Tale" og svo framvegis, þannig að þeim sem langar að vera memm.....mætið bara og já...komið með nammi eða ís eða köku óg rjóma
Já það gengur sem sagt frekar erfiðlega að koma sér úr jólaátinu en okkur er alveg sama þar sem Karen Helga er farin að spítta í og drekka meira af mömmu sinni og það er mín brennsla! Það eiga tveir snillingar stórafmæli í dag og vil ég óska þeim innilega til lukku með það. Í fyrsta lagi er það hún yndislega amma mín og nafna Lísa. Hún er 70 ára þessi elska og talaði ég við hana í heilar 50mín áðan og alltaf finnst mér hún jafn fyndin Hinn snillingurinn er hann Óli á Bjargi og er hann 50 ára í dag sem bauð okkur í PARTEI á laugardaginn kl. 20 en ég gleymdi að spyrja hvort maður mætti koma með barn???!
Karen Helga er búin að lifa í 104 daga og ég fattaði það um leið og þessi blessaði Borgarstjórn hrundi aftur því hún fæddist á þeim degi þegar hún hrundi síðast og meira að segja á sama tíma! En hún er mun hraustari en þetta lið í borginni og stendur sig í gegnum allt, litla hetjan mín Ætlum að reyna að byrja að blogga aftur hér en það er svona þegar prinsessan hefur hug manns allann að maður uppfærir bara hennar síðu, endilega kíkkið á hana....www.barnanet.is/lif
Gísli til hamingju með sveindóminn 1995
Kiddi góða ferð til Orlando, viltu kaupa "Salt water taffy" handa mér?
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Athugasemdir
takk,,,,,sú þýska stóð fyrir sínu,,,,ætli henni hafi ekki bara staðið ! ?
Gillinn (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 12:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.