Mánudagur, 13. ágúst 2007
Time Out
Þvílíkar tarnir búnir að vera að gestum og lítið um áhuga hérna megin að blogga, en svona gengur þetta bara, maður þarf að taka smá frí í þessu bulli líka. Svo er garðvinnan auðvitað aðal núna þannig að það lúkki allt voðaflott fyrir veturinn. En ýmislegt búið að gerast hjá félögunum og stærsti viðburðuinn til þessa var sá að í gærkvöldi , ja um 20.42 kom lítill drengur í heiminn á Þingeyri sem var hvorki meira né minna en rúmar 17 merkur og 54cm, innilega til lukku Þórey og Elli, er að brenna úr öfund hérna megin. En þetta styttist auðvitað alltaf og förum við í skoðun á morgun alveg að verða komin 33 vikur!!
Kíktum á Fiskidaginn mikla á föstudagskvöldið sem var reyndar rosalega kósýdæmi þrátt fyrir að Dalvíkingar séu að skipuleggja þetta og var bara opið í öll hús með kyndlum, seríum, súpum og tónlist og var nánast troðið alls staðar. Hittum fullt af skemmtilegu fólki sem maður hefur ekki séð lengi og var ég ekki alveg tilbúin að fara heim en grindin gaf eftir...ví!! Laugardagskvöldið fór í mjög hressandi matarboð með Hollendingunum okkar og ætluðum við svo inn á Dallas en þá kom þessi hellirigning þannig að við slepptum flugeldasýningunni í ár. Í staðinn skoruðum við Hela á Rúnar og Máa í Trivial og by the way.....RÚSTUÐUM ÞEIM!! Maður græðir alltaf á því að vera búinn með Háskóla... Aðalstemmarinn var þó á Sunnudag þar sem Garðstígsbikarinn var afhentur í 9. sinn og voru það Ma og Pa sem hlutu þann heiður að fá að geyma hann í ár vegna ýmissa afreka t.d að sigra Mælifell o.fl. Innilega til hamingju með það og vonandi getiði gert eitthvað merkilegra á næsta ári...voa tapsár!! Bless
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Athugasemdir
Hæ skvísan. var að renna yfir skemmtilega bloggið þitt frá sumarmánuðunum og þori ekki annað en að kvitta fyrir, satt sem þú segir, maður er að drepast úr forvitni um hverjir eru að lesa bullið sem maður skrifar..hehe.. Flott myndin sem ég tók af ykkur á Dallas.
Kv. Sigga frænka
Sigga Guðm. (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 16:30
HÆ HÆ OG TAKK FYRIR SÍÐAST
GAMAN AÐ SJÁ HVAÐ VIÐ ERUM FALLEGAR SVONA MEÐ KÚLURNAR OKKAR ÚTÍ LOFTIÐ
VONA AÐ SÚPAN HAFI EKKI KOMIÐ EINHVERJU AF STAÐ HJÁ ÞÉR HEHE EN JÆJA SETTU NÚ INN NÝJAR MYNDIR
KVEÐJA LÓA
Lóa (IP-tala skráð) 17.8.2007 kl. 14:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.