Mánudagur, 16. júlí 2007
Rollutu---r!!
Okey ég veit alveg að ég bý í litlu sveitarfélagi en ég bý nú ekki í sveit. Ef sú löngun hefði komið upp þá ætti ég jörð einhversstaðar í afdælum og drykki ískalda kúamjólk á hverjum morgni. En Við vöknum á hverjum einasta morgni kl 5.00 við það að það eru rollur að éta runnana okkar og blómin og helvítis jarmið í þeim er að gera okkur GEÐVEIK, ertu að grínast hvað þetta er pirrandi, þar var nebblega grindahlið hérna við brúnna en eftir að hún var löguð þá ákváðu einhverjir gálgar að gleyma að setja aftur rimlahlið þannig að þessir menn eru ekki að skora mörg stig hjá Lísebet Hauksdóttir og Rúnari Gunnarssyni.
Stigagjöfin er nú að verða tiltölulega jöfn um hvort kynið verður þannig að þetta verður bara mjög skemmtilegt þarna í október. Hanna er komin með sýna gersema í hendurnar og verð ég nú að segja að ég öfunda hana svolítið á að þetta sé búið. Innilega til lukku með litlu skvísuna elskurnar, ég kem inneftir á fimmtudaginn og kíkka á ykkur ef ég má.
Nikulásamótið endaði í gær hérna á Óló með mikilli lukku og gekk bara allt hrikalega vel. Hitti nokkra Laugvetninga eins og alltaf á svona mótum og það var bara líf og fjör og veðrið fínt utan við smá vind sem enginn kippti sér upp við. Við ákváðum að henda upp einu stykki af skjólvegg fyrir framan húsið svo ég gæti nú berrað mig í sólinni á daginn og tók það ekki nema tvær kvöldstundir að henda honum upp, enda vanir menn þar á sveimi. Set inn framkvæmdarmyndir við tækifæri. Annars erum við bara að bíða spennt eftir helginni því leiðin liggur í útilegu fyrir austan, ú-je
Bið að heilsa ykkur í bili og þið vitið að þið eruð alltaf velkomin í Ólafsveg 48 ef þið takið sunnudagsrúntinn einhvern seinnipartinn....XXX L
Tenglar
Meina Freunde
Þeirra uppákomur
Nýjustu færslur
- 4.9.2009 Bissý-dey
- 1.9.2009 Lísebet Hauksdóttir
- 29.8.2009 Helló..helló again..sjíbúmm sjíbúmm
- 31.12.2008 GLEÐILEGT ÁR OG FARSÆLT NÝTT 2009
- 24.12.2008 Gleðilega jólahátíð allir saman
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Athugasemdir
Já ég skal trúa því að þið séuð pirrúpú við rollurnar !!!
Man hvernig þetta var í GRENÓ í "gamla daga" :) En talandi um sunnudagsrúnt...verðið þið heima næsta söndei? oder was? Vertu allavega í bandi ef svo er mín kæra ;)
Knús frá Bibbu olnbogasýktu...aha...ekki fá sár á olnbogann...SO RISKÝ!!!
Birna (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 19:47
hellú esskan. Hvaða dag ertu að meina? ekki á morgun heldur hinn eða næsta? Ekki það að það skipti máli, verðum í útilegu um helgina og komum heim á sunnudag og verðum heima næstu helgi :-)
Endilega komiði og við grillum og kúrum og eitthvað kósí..
Lísan (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 12:54
Hvaða svakalega gáfnaljós ákvað að sleppa grindahliðinu
Það kom nú ósjaldan fyrir þegar ég bjó þarna að rollurnar voru að reyna að komast yfir þó það væri grindahlið og þeim tókst það stundum, get rétt ímyndað mér hvernig er þegar ekkert hlið er þarna. Bara skella grillinu á pallinn og vera tilbúin að grípa eina, lambakjöt á grillið klikkar aldrei
Gullý (IP-tala skráð) 22.7.2007 kl. 18:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.