Leita í fréttum mbl.is

Klappi, klappi klapp!!!

Hvað var málið með allt klappið í X-factor, það var c.a. 4x á meðan keppandinn stóð hjá kynninum sem brosti vel og lengi og stóð í fínni pósu að okkar matiLoL og svo var klappað fyrir atriðið og eftir að sá og hinn sami var búinn að syngja. Dí hvað mér fannst Gylfi samt standa sig vel og hann átti ekki skilið frá dómurunum það sem þeir létu út úr sér. Inga líka góð, bara pínku stressuð, en ég er mjög sátt við að þau eru áfram eins og allir. DÓMARARNIR voru sér algjörlega til SKAMMAR með þessum túla sínum og vá hvað ég var hneyksluð þegar þau fóru að brúka munn um hvort annað sín á milli fyrir framan alþjóð, komment eins og:

-Ellý sagði mér áðan baksviðs að hún væri búin að sofa hjá 12 trommurum!

-Þetta var jafn mikið fake og sílíkonið í vörunum á Ellý!

-Once you go black, you never go back!

KOMMON, það eru krakkar að horfa á þessa "fjölskylduskemmtun", dí ég er kannski bara orðin svona þroskuð við að kenna 1. bekk en vá, ég á ekki orð. Kannski aðeins einbeita sér meira að keppendunum og þeirra frammistöðu næsta föstudag Palli, Ellý og Einsi????

Allavega skellti ég mér svo til spákonu á lau og mæ ó mæ allt að gerastHeart Fórum í leikhús og SVARTAN KÖTT sem var hreinlega algjör snilld og allt öðruvísi en hin happy happy leikrit sem maður er vanur að fara á. Ég mæli eindregið með þessari sýningu. Þvoði svo bílinn og eitthvað chill bara frameftir degi. Lessi var svo að koma í land í gærkveldi þannig að ég er að hugsa um að fara að heilsa upp á hann. Jónna Bjöss var skráð í gær þannig að vonandi fer þetta nú allt að koma hjá henni.....breathe!!!


Áfram Ísland

Koma svo!!!!!!!!!!!! Mit die hände auf der arme...djók ví

Reykjavíkurferð dauðans!!!

Já æji ég er búin að vera frekar löt að blogga og á meira að segja ennþá eftir að gera ársyfirlit eins og allir í kringum mig, en ég hef reyndar aldrei verið þekkt fyrir að gera eitthvað eins og allir hinir þannig að ég ætla bara að sleppa því að vera að brasa eitthvað í því. Það sem er eftirminnilegast af síðasta ári er hreinlega að við erum ennþá lifandi!!!Heart En jújú við prufuðum ýmislegt, fórum á árshátíð til London, tókum páskaferð til Norge og fórum í framhaldi af því til Köben, keyptum okkur jeppa, keyptum okkur einbýlishús, fluttum á Óló og fengum okkur nýjar vinnur og við áttuðum okkur líka á því hvað er gaman að vera tilInLove

Nýársheitið var eiginlega ekkert, nema að betri heilsa komi þetta árið þannig að ennþá hefur það bra gengið ágætlega. Ég var að koma heim úr afmælinu hans Fjalla félaga og vávááá hvað það var gaman að hitta loksins alla sem maður hefur bara heyrt talað um. Skemmtiatriðin voru geggjuð og þvílíkur stemmari á dansgólfinu með Freysa, Danna, Hildi Völu og Davíð Loga. Davíð Óla var hins vegar ekki eins hress og endaði ja....ekki orð um það meir!!! Geggjað að hitta Freysa sem var að kenna með mér í Austria því hann lofaði mér að koma norður í skíðaferð og taka púðrið í fjöllunum í kring í gegn!!! Reyndar sá ég fyndnustu mynd í heimi af vini mínum Fjalari en það var þegar hann var u.þ.b. 8 ára og fékk litli peyinn HETTUSÓTT og JESÚS JESÚS hvað hann var fáránlegur, það var eins og hálsinn væri að springa og hann leit út eins og eitthvað sem maður photoshoppar, skal reyna allt sem ég get til að redda mynd af þessu, þið bara verðið að sjá þetta! Utan við afmælið þá gerði ég svo sem ekkert nema að eyða peningum og er ég ekki ennþá farin að þora að opna heimabankann, fjúffff... Jú ég fór með Írisi dónastelpu og borðaði SUSHI...ummm það er ekki til betri matur í heiminum, sjitt-örinn. Enda átum við 8 diska(tek það reyndar fram að þeir eru mjöööög litlir) en vá hlakka bara til að fara aftur suður til að gera fengið mér sushi. Tók einnig á því í IKEA og keypti pakka fyrir hina og þessa. En núna er það bara back to reality og vinnan kallar. Take care elskurnar og munið að snjórinn er hollur...ciao


Vika í pumpið

Já góðir gestir nær og fjær nú er um að gera að fara að peppa sig upp í gymmið því það eru einungis 7 dagar þangað til nýja prógrammið fer í gang. Mana ykkur til að taka á því aðeins áður því það er ekki gott að koma svellkaldur eftir viku og ætla sér stóra hluti, þetta er hrikalega geggjað prógramm og þvílíkt geggjuð tónlist....sh-jitt hvað ég hlakka til.

Snjórinn er farinn að knúsa mig ansi heitt þarna á horninu og ég tími hreinlega ekki að taka niður jólaskrautið þannig að það fær að vera eitthvað lengur, kannski bara út jan Heart Já Steffý takk fyrir skíðaferðina, hún var geggjuð, ég var reyndar mjög dugleg og var á skíðum alveg til 5 þó svo að færið hafi ekki verið neitt kreisí. En vá hvað vindurinn var kaldur, ég sá mig alveg fyrir mér lita út eins og Lloyd og Harry í Dumb and Dumber þegar þeir voru á hjólinu. Horið var farið að leka og það var frosið við andlitið á manni...jummý!!W00t Annars er bara verið að undirbúa afmæli ársins hjá Fjalla vini mínum og þar verður sko tekið á því.

Bis SpÅter.....


ó-je...nú verður sko tekið á því eftir svakalegar steikur og kappát í u.þ.b. 14 daga!!!

Sjitt hvað maður er ruglaður að gera sjálfum sér þetta. En kannski finnið þið ekki eins mikið fyrir öllu þessu reykta eins og ég því eftir allt mitt heilsuleysi á síðasta ári þá er ég svoddan auli hvað mat og drykk varðar og núna er ég alveg að ná af mér afmynduninni sem átti sér stað í andlitinu á mér eftir jólahátíðina...bjúgur nammi namm, set EKKI inn myndir seinna af mér Grin Annars var hörkustuð og kósíheit um jólin og fékk maður ýmislegt gott og flott eða eiginlega bara allt, var samt eitthvað voða tilfinningarík á aðfangadag og já tölum ekkert meira um það! Rúní minn gaf mér síma og kaffivél og DVD og allskonar, algjör dúlla og svo fékk ég töfrasprota og hárblásara og allskonar styttur og fínerí og svo fékk Rúní þvílíkt flotta gönguskó og legghlífar sem hann var ekkert smá ánægður með.

Á 2. í jólum ballinu var stappað að fólki og ég man ekki eftir helmingnum af liðinu en það eina sem ég veit að ég hitti alla og það var hrikalega gaman. Svo einkenndust þessi jól bara svona í stórum dráttum á því að fara í heimsóknir kl 23 á kvöldin og sötra eitthvað rautt eða hvítt og spjalla og spila og ef við kíktum ekki í heimsókn þá kom einhver til okkar þannig að það var engin pása og ekkert smá kósý. Áramótapartýið fór fram hjá Svövu og Dadda í hörkustuði og meira segja varð Bökka full af 2 bjórum held ég, eða var hann kannski bara einn Bökka???W00t

Hins vegar í fyrsta skipti á ævinni þá gerði ég ekki megrunar áramótaheit því á ballinu voru allir að segja mér hvað ég liti vel út á ballinu 2. í jólum(sáu mig sem sagt ekki 1.jan með bjúgað), þannig að eina sem ég óska mér á þessu ári er betri heilsa og ég stefni líka að því að vera jákvæðari og já auðvitað rosalega ástfangin..InLove

En elskurnar ég vona að allir séu ánægðir og takk fyrir allar kveðjurnar sem ég var bara að sjá núna, sorry nennti ekki að opna tölvuna mína um jólin...Sjáumst á nýja árinu með bros á vör


Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Þórey, hún á afmæli í dag....

Veieieieieieieieiieieieie HeartInnilega til lukku með daginn elsku vinkona, ég vildi að ég gæti verið hjá þér og knúsað þig en það reynist frekar erfitt á þessum yndislega aðfangadegi. Geri það bara um páskana love. Oh dagurinn er búinn að vera brilliant eins og aðfangadag sæmir að vera. Við sváfum út og svo fór ég og færði manninum mínum í rúmið og það var auðvitað ekkert annað en morgunmatur ársins.....m&m í skál, mjólk útá og étið með skeið...mmmmmmmm en ég veit að þetta er bilun en þetta er hans aðalsmerki á aðfangadag þannig að ég verð að standa mig. Svo fengum við í skóinn líka. Ég var búin að biðja jólasveininn um að gefa mér DVD og það nýju X-man myndina og ég fékk hana, dí hvað hann er góður og svo fékk Rúnar Baggalútsgeisladiskinn sem hann var líka búinn að biðja um og meira að segja líka stóra stóra pússlu, hann er sko algjört æði þessi jólasveinnInLove

Kæru vinir hér er búið að skreyta allt frá toppi til táar, ég er búin að fara í sturtu og b.t.w. þá komu jólasveinar með pakka frá bænum til mín og tvö jólakort, þetta er ótrúlegt. Var annars bara að hoppa úr sturtu og stefnum við svo á að fara að bera út jólakortin eftir hádegi og taka einn jólarúnt. Elsku vinir nær og fjær ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar í nýju ári. Takk fyrir að vera til öll saman.

hóhóhó......over and out 


Jólafrí, jólafrí, jólafrí-frí-frí

jesssssssss þriðjudagur dauðans liðinn og nú eru bara litlu jólin eftir. Ég hlakka hrikalega til að upplifa aftur að maður má koma með frjálst nesti í skólann, kertaljós og klæðin rauð, lesin jólasaga reyndar núna af mér! jólasveinarnir fara í stofuheimsóknir og jújú við fáum pakka...dí hvað mig hlakkar til og svo verður auðvitað farið og dansað í kringum jólatréð í jólakjólnum Heart 

Erum bara að klára að undirbúa á fullu og þrífa og pakka inn og senda frá okkur jólakort og ef þú vinur/vinkona minn/mín kæri/kæra færð ekki kort frá mér þá er það vegna þess að þú kemur aldrei í heimsókn til mínDevil rétti jólaandinn hérna í Ólafsveginum ha?? jólahvað?? Ég bara fæ ekki nóg að Glám og Skrám heheheehhehe snilld. Jólaklippingin búin og svona og allt er klárt. Stefnum á það að kíkka á Ak á fimmtudaginn að losa okkur við pakka og taka kaffihúsaheimsókn eða eitthvað skemmtó. Svo er auðvitað leynivinavikurnar(2og1/2) á enda á morgun og hlakka ég gríðarlega mikið til að sjá hver er með mig, held það sé fröken Soffía eða Arndís....en kemur í ljós. Ég veit að ég á eftir að setja inn myndi síðan ég veit ekki hvenær einu sinni en það mun koma að því vonandi um jólin....

Bið að heilsa ykkur í bili elskurnar....lifið heil og gleðilega jólahátíð.  Hóhóhó 


Jólaklúbbur í kvöld...hóhóhó

"Ég hlakka svo til....Ég hlakka alltaf svo til, nú er hver dagur svo lengi að líða, mér leiðist skelfing að þurfa að bíða"...Það bara hljóma ekkert annað en jólalög þessa dagana og ég bara get ekki beðið lengur en samt er alveg heil vika þangað til allt saman kemur í fangið á manni. Við erum ennþá að ákveða hvar við eigum að vera, það eru opnir faðmar alls staðar og við erum velkomin út um allt, erum að melta það að prufa að vera bara tvö heima hjá okkur en mér finnst það svolítið skrýtið en verður örugglega voðalega kósý hins vegar. Sjáum til....munið bara að hver sem niðurstaðan verður þá þykir okkur alltaf jafn vænt um ykkur öllHeart

Jólaklúbburinn er í kvöld og ætla skvísurnar að skreyta götur bæjarins og koma með pakka og öl í Ólafsveginn í kvöld. Byrjum á dinner og svo eftirrétt og svo er spurning hvar við endum!! Hlakka svo til að fá ykkur stelpur. Leynivinavikan er í hámarki núna og fær maður nánast pakka í hverjum degi. Ég er búin að fá tvær jólastyttur, tvö viskastykki handa Rúnari kokk, englastyttu og fullt fullt af fallegum orðum svona til að peppa mann upp í skammdeginu, oh þetta er yndislegt. Hafið það sem allra best, ég fer að setja inn myndir af jólahúsinu okkar Gullý mín, ég lofa að reyna allavega að muna það!!!Tounge

Knús og kram og allt það góða.....Lísan


aðventuhátíðin er á eftir...o.m.g..

Já við erum að tala um það gott fólk að ég er að fara að syngja svona eins og kirkjukórinn...óperu og það er í fyrsta sinn sem það gerist og líklega það síðasta. Held hreinlega að ég hafi aldrei verið eins stressuð og ég er núna. En vonandi verður guð bara hjá mér, ég reyni bara að horfa nógu mikið upp til hans á meðan ég er stödd í kirkjunni og þá hlítur hann að hjálpa mér slysalaust í gegnum þessa reynslu!!

Helgin gekk svona brilliant og það bara komust hreint allir í sæti í jólahlaðborði kennara sem fór fram í Ólafsvegi 48, 28 manns mætti á svæðið, hvorki meira né minna og voru bara dregnir fram útilegustólarnir til að allir fengju sæti, svo var náttlega partý á báðum hæðum en samt frekar dannað þar sem kennarar koma saman. Á laugardeginum tók ég eldhúsið með mömmu og svo skelltum við hjúin okkur í matarboð til Svövu og Kjartans ásamt Svönnu Boggu og Ingó og Marý og Pálma og þvílíkt stuð. Mikið hlegið og borðað og drukkið en við fórum heim á miðnætti því við fengum þær fréttir frá nágrönnunum að ljósatindarnir okkar væru komnir langleiðina út í ós vegna veðurs. Við brunuðum heim á Jeppos og þá var það nú hvorki meira né minna en það að þeir lágu á hliðinni!!! En takk fyrir það, sluppum við þynnku og peningaeyðslu daginn eftir Halo Svo var bara kúrt í TV í nótt og sofið út...namminamm hvað það er gott. En jæja verð að fara að henda grímunni upp og undirbúa mig undir kirkjutónleika......wish me luck everyone........ThanX


Jólin jólin allsstaðar.....

Oh, húsið mitt er orðið svooooooo mikið jólahús að ég bara get starað á það endalaust. Ég er meira að segja orðin það klikkuð að ég er búin að skreyta allt inni og allt. Toni, Eggert og Jói tvíbbi komu nebblega í gær til að klára verkið og setja seríuna alveg upp í risið og vá ó vá hvað þetta er orðið flott. Ég splæsti auðvitað koníaki á menn og mun gera það áfram við þá sem eru á vegi mínum í Ólafsveginum. Mér þykir vest ef ég þarf að drekka allt púrtvínið ein, það finnst öllum það vont. Golli minn ég sé það að mig bráðvantar að fá þig í heimsókn í jólamánuðinum því þá á ég alltaf púrtara handa þér Kissing 

Kristján brói átti afmæli í gær og Svava og Tinna Björg þannig að það var nóg að gera í hamingjuóskunum og fékk maður auðvitað tertur í kjölfarið á því. Við hjúin skelltum okkur í læknisheimsóknir í gær og gekk það bara vel og ég held bara að við förum alveg að verða hraust :-D Hlakka mikið til morgundagsins þar sem ég er að fara að halda jólahlaðborð heima hjá mér í jólahúsinu og allir kennarar og makar að fara að mæta..´dí hvað verður þrifið í dag og á morgun, get ekki beðið...NOT ég þoli ekki að þrífa,,,díses þetta er eitthvað sem bara venst aldrei, ALDREI. En ég fæ mér bara púrtara og hækka græjurnar í botn þá finnur maður ekkert fyrir þessu Grin Leynivinavikan er byrjuð í skólanum og vá hvað það er gaman. Flash back á Laugarvatn og þvílík tilfinning. Ég er þvílíkt búin að dúlla við mína og ég fékk pakka í morgun. Þetta er svo notalegt i dimmunni og jólaljósunum...

Bið að heilsa ykkur í bili little ones...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Eigendur

Lísebet Hauksdóttir
Lísebet Hauksdóttir
Við búum í Ólafsveginum nr. 48 í Fjallabyggð í goody feeling, nóg af herbergjum og gistiplássi :-D Verið velkomin elskurnar
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Færsluflokkar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband